Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.06.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026

Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum

Laust er til umsóknar fullt starf forstöðumanns Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum (Keldur), sem jafnframt er prófessor við Læknadeild innan Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands með takmarkaða kennsluskyldu samkvæmt nánari ákvörðun háskólaráðs. Um er að ræða samsetta stöðu samkvæmt lögum nr. 67/1990, sem einnig byggir á samstarfi Háskóla Íslands og Keldna samkvæmt samstarfssamningi stofnananna. Ráðið verður í starfið til fimm ára.

Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga til að veita Keldum faglega forystu og stýra mikilvægu rannsóknar- og þjónustuhlutverki stofnunarinnar á sviði dýraheilbrigðis og dýravelferðar. Þá hefur forstöðumaður forystu um rannsóknir á sviði dýraheilbrigðisvísinda og sinnir víðtæku samstarfi við innlenda og erlenda hagaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita stofnuninni faglega og rekstrarlega forystu.

  • Stýra og efla grunn- og þjónusturannsóknir á sviði dýraheilbrigðis og dýravelferðar.

  • Hafa forystu um rannsóknir á dýrasjúkdómum, greiningu þeirra og viðbrögð við þeim.

  • Stuðla að framþróun á sviði greininga, sóttvarna, faraldsfræði og meðferðar dýrasjúkdóma.

  • Efla samstarf við stjórnvöld, háskólasamfélagið, atvinnulíf, erlenda samstarfsaðila og aðra hagaðila.

  • Vinna að auknum sýnileika stofnunarinnar, efla orðspor og halda á lofti mikilvægi hennar í þágu samfélagsins.

  • Móta framtíðarsýn fyrir starfsemina og stuðla að áframhaldandi þróun hennar.

  • Samþætta sjónarmið einnar heilsu í rannsóknum og þjónustu stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í dýralækningum, læknisfræði eða öðrum skyldum greinum sem tengjast starfssviði stofnunarinnar, eða þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir starf prófessors á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.

  • Reynsla af dýrasjúkdómum, eðli þeirra, greiningu og viðbrögðum við þeim.

  • Reynsla af rannsóknum á sviði dýraheilbrigðisvísinda.

  • Þekking á velferð og heilbrigðismálum húsdýra, gæludýra, eldisdýra og villtra dýra.

  • Þekking á tengslum dýraheilbrigðis við heilbrigði manna, umhverfi og verndun stofna og tegunda samkvæmt hugmyndafræði ¿einnar heilsu¿.

  • Forystu- og leiðtogahæfileikar og reynsla af stjórnun og stefnumótun.

  • Mjög góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

  • Metnaður, frumkvæði og skýr framtíðarsýn.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag prófessora við ríkisháskóla hafa gert.

Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið sem fyrst eða þegar lokið er störfum þeirra nefnda sem um málið fjalla.

Um ráðningu í stöðuna fer samkvæmt 5. gr. laga nr. 67/1990 um Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglum fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Dómnefnd, skipuð á grundvelli reglna nr. 569/2009, veitir rökstutt álit um hvort umsækjendur uppfylli lágmarksskilyrði til að gegna hinu auglýsta starfi. Í dómnefnd um stöðu forstöðumanns eiga sæti fulltrúi Læknadeildar og Raunvísindadeildar, auk fulltrúa háskólaráðs og ráðuneytis, sbr. 5. gr. laga nr. 67/1990.

Að fengnu áliti dómnefndar skulu umsóknir teknar til umfjöllunar í valnefnd, sbr. 29. gr. reglna nr. 569/2009. Valnefnd starfar samkvæmt 44. gr. reglna nr. 569/2009 og veitir, á grundvelli heildarmats, umsögn áður en ákvörðun er tekin. Þegar um er að ræða störf við stofnanir sem heyra undir háskólaráð fer stjórn viðkomandi stofnunar með hlutverk valnefndar.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í störfin er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009 og lögum um Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum nr. 67/1990.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:

  1. Kynningarbréf þar sem fram kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins og hver framtíðarsýn hans er fyrir það, í samræmi við markmið beggja stofnana

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í starfið er tekið mið af jafnréttisáætlun Keldna og Háskóla Íslands. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands

Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er vísinda- og rannsóknastofnun á sviði dýraheilbrigðis og dýravelferðar. Starfsemi Keldna er fjölþætt og aðferðum margra fræðigreina beitt í grunn- og þjónusturannsóknum, s.s. meinafræði, sýklafræði, veirufræði, ónæmisfræði, sníkjudýrafræði, og sameindalíffræði. Stofnunin starfar samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er með faggildingar á ýmsum sviðum dýraheilbrigðis.

Nemendur á ýmsum stigum háskólanáms vinna að rannsóknarverkefnum á Keldum á hverjum tíma.

Upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar er að finna á keldur.is

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Nánari upplýsingar veita

Kristín Kalmansdóttir, framkvæmdastjóri Keldna (kristink@hi.is / 585 5120)

Félag prófessora við ríkisháskóla Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag prófessora við ríkisháskóla hafa gert. is is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sædís Sævarsdóttir

deildarforseti Læknadeildar

Tölvupóstur: saedis@hi.is

Sími: 5254881

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.06.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026