
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í kennslufræði læsis með áherslu á lestur, ritun og bókmenntir þvert á skólastig
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.06.2026
Umsóknarfrestur
06.08.2026
Lektor í kennslufræði læsis með áherslu á lestur, ritun og bókmenntir þvert á skólastig
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í kennslufræði læsis með áherslu á lestur, ritun og bókmenntir þvert á skólastig. Þetta er sameiginleg staða við Deild kennslu- og menntunarfræði og Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla á grunn- og meistarastigi um kennslufræði læsis, lesturs, ritunar og bókmennta.
Leiðsögn með lokaverkefnum grunn-, meistara- og doktorsnema.
Rannsóknir á sviði læsis, lestur og bókmennta. Þátttaka í þróun kennsluhátta fræðasviðsins innan Menntavísindasviðs.
Þátttaka í stjórnun, stefnumótun og þróunarstarfi.
Þátttaka í þróun rannsókna innan HÍ og rannsóknarsamstarfs um kennslufræði á alþjóðlegum vettvangi.
Hæfniskröfur
Doktorspróf á sviði kennslu- og menntunarfræði, íslensku eða íslenskra bókmennta eða skyldum greinum.
Leyfisbréf sem kennari er æskilegt.
Reynsla af kennslu í leik-, grunn- eða framhaldsskóla.
Reynsla af háskólakennslu er kostur.
Reynsla af rannsóknum á sviði fyrrnefndra greina.
Góð færni í íslensku, í ræðu og riti.
Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Rík áhersla er lögð á að sá sem starfið hlýtur hafi góða færni í kennslu og rannsóknum, og hafi skýra framtíðarsýn um hlutverk sitt í kennslu og rannsóknum á sviðinu. Horft verður til þess að ráðningin falli sem best að aðstæðum og þörfum deildanna tveggja og sviðsins í heild.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Ferilskrá (Curriculum Vitae)
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil og leyfisbréf
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt frá 1. september 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna munu fjalla.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Svava Pétursdóttir
Tölvupóstur: svavap@hi.is
Elsa Eiríksdóttir
Tölvupóstur: elsae@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í kennslufræði læsis með áherslu á lestur, ritun og bókmenntir þvert á skólastig
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.06.2026
Umsóknarfrestur
06.08.2026