Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur á sviði hugverkaréttar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Lögfræðingur á sviði hugverkaréttar

Laust er til umsóknar, tímabundið til tveggja ára, fullt starf hugverkalögfræðings við vísinda- og nýsköpunarsvið Háskóla Íslands. Meginmarkmið vísinda- og nýsköpunarsviðs er að efla rannsóknir við Háskóla Íslands með almennum stuðningi við rannsókna- og vísindastarf skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirlestur, umsjón og gerð samninga, m.a. hugverkaréttarsamninga, nytjaleyfissamninga, samstarfssamninga, trúnaðarsamninga o.fl.

  • Úrlausn lögfræðilegra álitaefna er tengjast samningum, hugverkarétti, félagarétti, sjóðasókn o.fl.

  • Umsjón með einkaleyfisumsóknum

  • Verkefnastjórn fyrir hugverkanefnd Háskóla Íslands og LHS, m.a. sjá um skipulag, fundargerðir, ársskýrslu o.fl.

  • Gerð ferla og leiðbeininga til rannsakenda og hagaðila vegna hugverkaréttamála

  • Þátttaka í fræðslu varðandi samninga og hugverkarétt fyrir starfsfólk og sprotafyrirtæki

  • Ráðgjöf, samskipti og samstarf við rannsakendur, sprotafyrirtæki og aðra hagaðila

  • Þátttaka í stefnumótun varðandi nýsköpun og hugverkamál háskólans

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í lögfræði

  • Starfsreynsla af hugverkarétti og félagarétti

  • Reynsla af samingagerð er kostur

  • Reynsla af nýsköpunarumhverfi á Íslandi er kostur

  • Nákvæmni, frumkvæði, sjálfstæði og geta til að vinna að mörgum verkefnum á sama tíma

  • Hæfni til að koma frá sér efni í ræðu eða riti

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og rík þjónustulund

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Jónsson

Tölvupóstur: dorij@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur á sviði hugverkaréttar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026