
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Tómstundafulltrúi - HSN Sauðárkrókur
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
16.06.2026
Umsóknarfrestur
30.06.2026
Tómstundafulltrúi - HSN Sauðárkrókur
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki leitar að öflugum og áhugasömum einstaklingi í starf tómstundafulltrúa í 70% starfshlutfalli, með ráðningu frá og með 16. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem lögð er áhersla á skipulagningu og framkvæmd tómstundastarfs, eflingu vellíðanar og virkni skjólstæðinga í góðu samstarfi við samstarfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila
Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.
Sauðárkrókur og Skagafjörður bjóða upp á framúrskarandi aðstæður til að samræma gefandi starf og gott líf utan vinnu, þar sem stutt er í náttúruna og samfélagið einkennist af samheldni og krafti. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þann sem vill takast á við fjölbreytt og gefandi starf í jákvæðu og styðjandi umhverfi.
Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning og framkvæmd tómstunda- og félagsstarfs fyrir þjónustuþega
Efla virkni, þátttöku og vellíðan íbúa með fjölbreyttum verkefnum
Einstaklingsmiðuð nálgun og þátttaka í daglegu lífi íbúa
Samstarf við starfsfólk, aðstandendur og aðra fagaðila
Þátttaka í þróun og eflingu tómstundastarfs innan einingar
Önnur tilfallandi störf skv. beiðni næsta stjórnanda
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði félagsvísinda, tómstunda- og félagsmálafræði, þroskaþjálfunar eða sambærileg menntun er æskileg
Reynsla af tómstunda- eða umönnunarstarfi er kostur
Íslenskukunnátta skilyrði
Áhugi á að vinna með fólki og efla lífsgæði þess
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun
Gott orðspor og hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá á íslensku og kynningarbréf. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorgi.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 30.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is
Sími: 432 4220

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Tómstundafulltrúi - HSN Sauðárkrókur
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
16.06.2026
Umsóknarfrestur
30.06.2026