Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir - Vilt þú taka þátt í að móta framtíð bráðaþjónustu?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Sérfræðilæknir - Vilt þú taka þátt í að móta framtíð bráðaþjónustu?

Við leitum að sérfræðilæknum til starfa á nýjum starfseiningum innan bráðaþjónustu Landspítala. Um er að ræða bráðamatsdeild, bráðadagdeild og heimaspítala BLEND sem allar eru staðsettar í Fossvogi. Unnið er að metnaðarfullri uppbyggingu samþættrar bráðaþjónustu með áherslu á betra flæði sjúklinga, styttri biðtíma og öruggari, skilvirkari og persónumiðaðri þjónustu.

Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt í einni stærstu uppbyggingu bráðaþjónustu Landspítala síðustu ára.

Leitað er að sérfræðilæknum sem vilja taka virkan þátt í að byggja upp nýjar starfseiningar frá grunni, leiða umbætur, stuðla að nýsköpun og þróa þjónustu framtíðarinnar.

Við bjóðum upp á fjölbreytt og spennandi starf í öflugu þverfaglegu teymi þar sem fagleg þróun, samvinna og nýjar leiðir í bráðaþjónustu eru í forgrunni.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt nánara samkomulagi og starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þetta er fjölbreytt starf fyrir sérfræðilækni sem vill sameina klíníska vinnu og virka þátttöku í þróun þjónustu. Þú verður hluti af öflugu þverfaglegu teymi sem vinnur að áframhaldandi þróun samþættrar bráðaþjónustu með það að markmiði að bæta flæði sjúklinga, stytta biðtíma og efla gæði og öryggi þjónustunnar.

Í starfinu felst meðal annars að:

  • Starfa á legudeildum, bráðamatsdeild og bráðadagdeild

  • Starfa í innlagnateymi almennra lyflækninga

  • Taka þátt í vaktþjónustu almennra lyflækninga

  • Taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu bráðalyflækninga og almennra lyflækninga

  • Taka þátt í gæða- og umbótastarfi með áherslu á þróun og innleiðingu nýrra verklagsferla

  • Taka þátt í kennslu læknanema og sérnámslækna

  • Taka þátt í rannsóknarstarfi eftir áhuga og samkomulagi

  • Þátttaka í uppbyggingu bráðalyflækninga og almennra lyflækninga

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum, bráðalyflækningum eða heimilislækningum

  • Víðtæk þekking og klínisk reynsla á sviði almennra lyflækninga

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni og geta til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Frumkvæði, jákvætt viðhorf metnaður og áhugi á þróun og umbótum heilbrigðisþjónustu

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og taka virkan þátt í þróun nýrrar þjónustu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Nánari upplýsingar veita:

Bethan Elizabeth Griffith, yfirlæknir bráðamatsdeildarEmail: bethane@landspitali.is,

Telma Huld Ragnarsdottir, yfirlæknir, almennar lyflækningarEmail: telmhuld@landspitali.is,

Hlynur Indriðason, yfirlæknir, almennar lyflækningarEmail: hlynuri@landspitali.is,

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hlynur Indriðason

Tölvupóstur: hlynuri@landspitali.is

Telma Huld Ragnarsdóttir

Tölvupóstur: telmhuld@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir - Vilt þú taka þátt í að móta framtíð bráðaþjónustu?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026