Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-30%

Starf skráð

10.06.2026

Umsóknarfrestur

30.06.2026

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH

Hefur þú áhuga á að vinna í þverfaglegu teymi?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir heimilislækni til starfa í Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Teymið er í stöðugri þróun, því gefast mörg tækifæri til að þróa faglega sérþekkingu.

Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana sinnir einstaklingum, 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og/eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins hafa oft á tíðum annan fjölbreytilegan taugaþroska og/eða sjúkdóma. Áhersla er lögð á þverfaglegt starf og unnið er þvert á stofnanir heilbrigðis- og velferðarþjónustu á landsvísu.

Ef þú hefur áhuga á vinna í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu og í öflugri teymisvinnu, þar sem góður starfsandi ríkir, þá er þetta spennandi tækifæri.

Um er að ræða 30% ótímabundið starf og ráðið er í starfið frá 1. ágúst eða eftir nánara samkomulagið.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. heilbrigðisskoðun skjólstæðinga, ráðgjöf með tilliti til heilsufarsþátta og eftirfylgni. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem hefur áhuga á að taka þátt í nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Sérfræðimenntun í heimilislækningum

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

  • Reynsla af kennslu er æskileg

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar fagstéttir og þátttaka í teymisvinnu

  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Íslenskukunnátta skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði

Læknafélag Íslands Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert. is is

Starfshlutfall er -30%

Umsóknarfrestur er til og með 30.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bjargey Una Hinriksdóttir

Teymisstjóri

Tölvupóstur: bjargey.una.hinriksdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6750

Dagur Bjarnason

Yfirlæknir

Tölvupóstur: Dagur.Bjarnason@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6750

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-30%

Starf skráð

10.06.2026

Umsóknarfrestur

30.06.2026