
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Geðgjörgæslu - Afleysing
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.06.2026
Umsóknarfrestur
06.07.2026
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Geðgjörgæslu - Afleysing
Geðgjörgæslan við Hringbraut vill ráða áhugasaman og kraftmikinn hjúkrunarfræðing í stöðu aðstoðardeildarstjóra tímabundið vegna afleysingar. Um fullt starf er að ræða. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni og vera tilbúinn til þess að taka þátt í og leiða öfluga teymisvinnu.
Á geðgjörgæslunni er veitt sérhæfð þjónusta í meðferð og umönnun einstaklinga með bráð geðræn einkenni vegna geðraskana. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar og hugmyndafræði um geðgjörgæslu eru í fyrirrúmi ásamt góðu samstarfi við aðstandendur.
Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Tækifæri til sérhæfingar eru mörg og því spennandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á að dýpka þekkingu sína í geðhjúkrun og öðlast dýrmæta reynslu í hjúkrunarstjórnun.
Tímabil afleysingaráðningar er 10.08.2026-31.05.2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggur og stjórnar daglegri starfsemi deildar í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
Er leiðandi í klínísku starfi og framþróun hjúkrunar
Ábyrgð á rekstri og mönnun deildar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
Stuðlar að hvetjandi og jákvæðu starfsumhverfi og stöðugri liðsheild
Þátttaka í uppbyggingu á þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Mjög góð samskiptahæfni og geta til að vinna undir álagi
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Mjög góð skipulagsfærni
Áhugi á geðhjúkrun og hjúkrunarstjórnun
Áhugi á þverfaglegu samstarfi og teymisvinnu
Reynsla af geðhjúkrun er kostur
Reynsla af umbótastarfi er kostur
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, aðstoðardeildarstjóri hjúkrun, hjúkrun, stjórnun
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Snæfríður Jóhannesdóttir
Tölvupóstur: snaefrij@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Geðgjörgæslu - Afleysing
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.06.2026
Umsóknarfrestur
06.07.2026