Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Vesturlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Staða yfirlögregluþjóns við embætti lögreglustjórans á Vesturlandi
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.07.2026
Umsóknarfrestur
22.07.2026
Staða yfirlögregluþjóns við embætti lögreglustjórans á Vesturlandi
Við embætti Lögreglustjórans á Vesturlandi er laus til umsóknar staða yfirlögregluþjóns. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri skipi í stöðuna frá og með 1. október n.k.
Nánari upplýsingar um vinnustaðinn
Lögreglustjórinn á Vesturlandi er eitt níu lögregluumdæma landsins sem ákveðin eru í lögreglulögum nr. 90/1996 og reglugerð um umdæmi lögreglustjóra nr. 1150/2014. Hjá embættinu starfa nú liðlega 65 starfsmenn. Hjá embættinu er m.a. lögð áhersla á gagnsæi, frumkvæði starfsfólks, umhverfismál, orkuskipti, framúrskarandi þjálfun og símenntun, opin og jákvæð samskipti, vönduð vinnubrögð, framúrskarandi þjónustu og vilja til samvinnu og samstarfs.
Í umdæmi Lögreglustjórans á Vesturlandi eru 8 sveitarfélög. Aðalstöð lögreglustjóra er í Borgarnesi, en lögreglustöðvar eru einnig á Akranesi, í Ólafsvík, í Stykkishólmi og í Búðardal.
Samkvæmt skipuriti frá því í janúar á síðasta ári, starfar embætti lögreglustjórans á Vesturlandi á þremur sviðum, rekstar-, löggæslu- og ákærusviði. Yfirlögregluþjónn gegnir mikilvægu samræmingar- og samhæfingarhlutverki gagnvart sviðunum og situr í yfirstjórn embættisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samkvæmt reglugerð um starfsstig innan lögreglunnar nr. 1051/2006 eru verksvið og ábyrgð yfirlögregluþjóns skilgreind í 5. gr.; auk neðangreindra atriða:
Innleiðing heildarstefnu, þ.m.t. eftirfylgni aðgerða, þvert á embættið
Umsjón og ábyrgð á teymisstarfi embættisins
Almannavarnir
Agamál
Gerð og eftirfylgni með starfsþróunaráætlun embættisins
Umsjón og skipulagning á starfsmannasamtölum og frammistöðusamtölum
Ber ábyrgð á innri vef embættisins
Innri og ytri öryggismál embættisins
Gerð og eftirfylgni áætlana innan embættisins
Önnur verkefni sem honum eru falin.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar og hafa að a.m.k. fimm ára starfsreynslu sem lögreglumaður eftir útskrift. Að auki er leitað eftir:
Umsækjanda með viðamikla stjórnunarreynslu innan lögreglu, jafnt innan almennrar löggæslu sem og á sviði lögreglurannsókna
Reynsla af verkefnastjórn er nauðsynleg, sem og að hafa innan lögreglu stýrt stærri verkefnum bæði til skemmri og lengri tíma.
Nám í stjórnun og/eða annað nám á háskólastigi er kostur
Æskilegt er að umsækjandi búi yfir þekkingu á sviði almannavarna og hæfni til skipulagningar aðgerða sem tengjast almannavá sem og af skipulagningu og framkvæmd löggæslu á stærri viðburðum.
Þekking og reynsla af MTP og Akra-áætlanakerfinu er kostur
Þekking á kjara- og stofnanasamningum er kostur
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, lausnamiðaðri hugsun, leiðtogahæfni, miklu sjálfstæði og sveigjanleika í starfi og miklu álagsþoli.
Umsækjandi þarf að búa yfir framúrskarandi hæfni og þekkingu á landskerfum lögreglu, mjög góðri íslenskukunnáttu í ræðu og riti og hæfni til að koma fram sem talsmaður lögreglu meðal almennings
Umsækjandi þarf að hafa góða almenna tölvuþekkingu og jafnframt skýran vilja og frumkvæði til að starfa í auknum mæli í stafrænu/pappírslausu starfsumhverfi.
Umsækjandi þarf að geta stuðlað að eftirfarandi þáttum meðal starfsmanna embættisins; aukinni hæfni, jákvæðri hegðun og framþróun. Þá þarf hann að eiga auðvelt með að gefa fyrirmæli á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og jafnframt hafa í störfum sínum ekki forðast að bregðast við vandamálum eða óæskilegri hegðun.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Jafnframt er gætt ákvæða gildandi stofnanasamnings.
Umsækjendur skulu senda inn ítarlega ferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Umsækjendum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til að gegna starfinu.
Til að staðreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði e-liðar 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglustjóra heimilt skv. 28. gr. a. sömu laga að afla upplýsinga um umsækjendur úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí n.k. og skal umsóknum skilað til lögreglustjórans á Vesturlandi með rafrænum hætti (sjá hnapp sækja um starf hér að neðan).
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir. Umsóknir munu gilda í 6 mánuði.
Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglu eru konur hvattar sérstaklega til að sækja um.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi, 8. júlí 2026
Gunnar Ö. Jónsson
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristján Ingi Hjörvarsson
Tölvupóstur: kristjanhj@logreglan.is
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Vesturlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Staða yfirlögregluþjóns við embætti lögreglustjórans á Vesturlandi
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.07.2026
Umsóknarfrestur
22.07.2026