
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur í heimaöndunarvélateymi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
18.08.2026
Hjúkrunarfræðingur í heimaöndunarvélateymi
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í heimaöndunarvélateymi Landspítala á göngudeild A3 í Fossvogi. Við leitum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með áhuga á krefjandi verkefnum.
HÖT er þverfaglegt teymi hjúkrunarfræðinga og lækna sem hafa sérþekkingu á sviði lungnasjúkdóma og öndunarbilunar sem er meðhöndluð með ytri eða innri öndunarvél. Teymið kemur að mati, greiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinga og fjölskyldna þeirra bæði innan spítala og í heimahúsum. Náið samstarf er við deildir Landspítala sem og umönnunaraðila og starfsfólk annarra heilbrigðisstofnana.
Starfshlutfall er 50-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Viðkomandi fær góða starfsaðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum teymisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fræðsla og stuðningur til sjúklinga sem þurfa á að halda öndunarvélameðferð heimavið
Þátttaka í skipulagðri fræðslu til sjúklinga, aðstandenda og umönnunaraðila
Virk þátttaka í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
Þátttaka í teymisvinnu
Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Frumkvæði og faglegur metnaður
Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að starfa í teymi
Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
Reynsla af hjúkrun bráðveikra er kostur
Reynsla af hjúkrun lungnasjúklinga er kostur
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur í heimaöndunarvélateymi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
18.08.2026