Þjónustuaðili
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í fjármálum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.06.2026
Umsóknarfrestur
24.06.2026
Sérfræðingur í fjármálum
Sérfræðingur í fjármálum á skrifstofu fjármála og rekstrar
Það er eins gott að þeim milljörðum sem menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið ber ábyrgð á sé vel varið. Þess vegna leitum við að manneskju sem hefur hæfileika til að sjá skóginn fyrir trjánum og elskar að fást við tölur.
Viðkomandi þarf að hafa eiginleika til að bregða sér í ýmis hlutverk en viðkomandi mun taka þátt í vinnu er lítur að hringrás opinberra fjármála, í samræmi við lög þar um. Í því felst meðal annars vinna að fjárlögum og fjármálaáætlun ár hvert, fylgja eftir áætlunum stofnana, greina afkomu og hafa eftirlit með og veita ráðgjöf til ríkisaðila sem undir ráðuneytið heyra.
Ef gangverk opinberra fjármála höfðar til þín þá er þetta rétti starfsvettvangurinn fyrir þig. Sendu inn umsókn.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sérfræðingur á skrifstofu fjármála og rekstrar með áherslu á framkvæmd fjárlaga
Framfylgja lögum um opinber fjármál (LOF)
Samskipti við Fjársýslu ríkisins, önnur ráðuneyti og aðra ríkisaðila
Samskipti við undirstofnanir ráðuneytisins
Þátttaka í teymisvinnu innan ráðuneytisins, s.s. vegna opinberra fjármála, samningagerðar, fasteignamála o.fl.
Greiningarvinna s.s. frávikagreiningar og sviðsmyndagreiningar
Greinargerðarskrif og minnisblaðagerð. Afla gagna og svara fyrirspurnum frá Alþingi, Ríkisendurskoðun, fjölmiðlum o.fl.
Taka þátt í verkefnum er snúa að bókhaldi innan skrifstofunnar
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilegum greinum
Mjög góð færni í vinnu með tölur og úrvinnslu gagna. Mjög góð Excel kunnátta og geta til að vinna með Power BI
Þekking á Oracle eða öðrum bókhaldskerfum nauðsynleg
Þekking á lögum um opinber fjármál og framkvæmd þeirra er kostur
Vilji og geta til að leggja sig fram í spennandi og krefjandi umhverfi
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði
Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt
Mjög góð samskipta- og skipulagshæfni. Þjónustulund og jákvæðni
Geta til að veita ráðgjöf/leiðsögn til samstarfsaðila á uppbyggilegan hátt
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Um er að ræða fullt starf sérfræðings í fjármálum á skrifstofu¿fjármála og rekstrar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum. Ráðuneytið áskilur sér rétt til að ráða fleiri en einn starfsmann á grundvelli þessarar auglýsingar.
Nánari upplýsingar veitir Ari Sigurðsson, skrifstofustjóri skrifstofu fjármála og rekstrar, ari.sigurdsson@mnh.is
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Athygli er vakin á því að samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er ráðuneytinu skylt að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf þegar umsóknarfrestur er liðinn verði eftir því leitað.
Ráðuneytið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.
Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert. is is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í fjármálum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.06.2026
Umsóknarfrestur
24.06.2026