
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf í klínískri erfðaráðgjöf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026
Starf í klínískri erfðaráðgjöf
Laust er til umsóknar starf háskólamenntaðs aðstoðarmanns í erfðaráðgjöf á Erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala (ESD).
Erfða- og sameindalæknisfræðideild sér um alla alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu á Íslandi. Þar er starfrækt fjölbreytt göngudeild erfðaráðgjafa sem sinna meðal annars erfðaráðgjöf einstaklinga með krabbamein, ýmsa arfgenga sjúkdóma auk erfðaráðgjafar fyrir og á meðgöngu svo dæmi séu tekin.
Starf erfðaráðgjafa verður sífellt fjölbreyttara með framförum á sviði erfðafræði og er þetta spennandi tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í innleiðingu nýrra verkefna á deildinni. Á deildinni er þverfaglegt starf og daglegt samstarf með öðrum heilbrigðisstéttum deildarinnar og starfsfólki rannsóknarstofu. Góður starfsandi er ríkjandi og markvisst er unnið að umbótum á deildinni. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Starfið veitist frá 1. nóvember 2026. Starfshlutfall er 100% og unnið er í dagvinnu, virka daga.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjar- og göngudeildarviðtöl undir leiðsögn erfðaráðgjafa og lækna deildar
Eftirfylgd erfðarannsókna og miðlun svara til ráðþega deildar
Gera áhættumat m.t.t. vissra krabbameina
Útbúa fræðsluefni
Kynna sér rannsóknarstofuvinnu deildar
Vísindastarf
Hæfniskröfur
BS eða Mastersgráða í líffræði, líf- og sameindalíffræði eða sambærilegt nám sem veitir góðan grunn í erfðafræði
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Hæfni og geta til að unnið sjálfstætt og í teymi
Áhugi og reynsla af störfum tengdum erfðafræði er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, líffræðingur, lífeindafræðingur, náttúrufræðingur, rannsóknir,
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 3/5
Staðsetning: Skógarhlíð, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Hallgrímsdóttir
Tölvupóstur: sigrunha@landspitali.is
Eirný Þöll Þórólfsdóttir
Tölvupóstur: eirnyt@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf í klínískri erfðaráðgjöf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026