Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Náttúru­fræði­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í landfræðilegum greiningum og líkanagerð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026

Sérfræðingur í landfræðilegum greiningum og líkanagerð

Náttúrufræðistofnun auglýsir laust til umsóknar fullt starf sérfræðings á sviði landupplýsinga við landfræðilegar greiningar, líkanagerð, úrvinnslu gagna og þróun tæknilausna á fagsviðinu.

Starfið felur jafnframt í sér þátttöku í rannsóknar- og þróunarverkefnum þar sem unnið er með fjölbreyttar aðferðir til þess að skapa landfræðileg gögn og þekkingu. Um er að ræða starf sem reynir á sjálfstæð vinnubrögð, greiningarhæfni, færni til miðlunar upplýsinga og samstarfshæfileika.

Viðkomandi þarf að hafa áhuga á því að vinna á mörkum tækni, gagna og samfélags. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til að taka þátt í þróun lausna sem styðja við upplýsta ákvarðanatöku og aukið aðgengi að gögnum.

Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf síðla sumars.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Landfræðilegar greiningar

  • Líkanagerð og úrvinnsla gagna

  • Túlkun og miðlun niðurstaðna

  • Þátttaka í þróun gagnainnviða og tæknilausna

  • Samstarf við sérfræðinga á ólíkum sviðum

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði landupplýsinga, verkfræði, tölvunarfræði eða skyldra greina

  • Framúrskarandi þekking á QGIS og/eða Python eða R fyrir landupplýsingavinnslu

  • Góð hagnýt reynsla af SQL og vinnu með gagnagrunna

  • Yfirgripsmikil reynsla af landfræðilegum greiningum og líkanagerð

  • Greiningarhæfni og tæknilegur skilningur á landupplýsingum og gagnavinnslu

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, hæfni og vilji til samstarfs

  • Drifkraftur, frumkvæði og vilji til að afla sér nýrrar þekkingar

  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð

  • Reynsla af vinnu með umhverfis- eða náttúrugögn er æskileg

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er kostur

Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af:

  • PostgreSQL og PostGIS

  • Landfræðilegri tölfræði

  • Fjarkönnun

  • Sjálfvirknivæðingu verkferla

  • Miðlun og framsetningu gagna

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Við bjóðum

  • Skapandi og fjölbreytt vinnuumhverfi

  • Tækifæri til að vinna með opinn hugbúnað og nýjustu lausnir á sviði landupplýsinga

  • Öflugt samstarfsfólk með mikla þekkingu og brennandi áhuga á landupplýsingum

  • Sveigjanlegt starfsumhverfi sem styður við frumkvæði og sjálfstæði

  • Góð tækifæri til starfsþróunar, nýsköpunar og símenntunar

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Staðfest afrit prófskírteina ef við á

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

  • Stutt kynningarbréf þar sem áhuga fyrir starfinu er lýst og tiltekið hvað umsækjandi getur lagt af mörkum til auglýstra starfsþátta

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um niðurstöðu þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Öll kyn eru hvött til að sækja um störf hjá Náttúrufræðistofnun í samræmi við jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu stofnunar.

Um Náttúrufræðistofnun

Á Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi á stofnuninni er góður og heimilislegur, þar sem leitast er við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað og heilsueflandi vinnuumhverfi. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.

Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru sex, í Garðabæ, á Akranesi, á Breiðdalsvík, í Mývatnssveit, á Raufarhöfn og á Akureyri.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ásta Kristín Óladóttir

Sviðsstjóri

Tölvupóstur: Asta.k.oladottir@natt.is

Heiður Reynisdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: Heidur.Reynisdottir@natt.is

Þjónustuaðili

Náttúru­fræði­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í landfræðilegum greiningum og líkanagerð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026