
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbær
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026
Móttökuritari - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbær
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að jákvæðum einstaklingi í 100% starf móttökuritara. Um er að ræða starf sem reynir á samskiptahæfni og þjónustulund viðkomandi.
Starfið er tímabundið til eins árs og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta. Okkur er umhugað um starfsfólkið okkar og leggjum mikla áherslu á vellíðan í starfi.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar island.is/hh
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
Uppgjör í lok dags
Afgreiðsla tímapantana í afgreiðslu
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna
Hæfniskröfur
Nám sem nýtist í starfi
Reynsla af starfi í móttöku
Reynsla af Sögukerfi kostur
Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugarfar
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Metnaður og sjálfstæði í starfi
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn enskukunnátta æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
viðkomandi stéttarfélag Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. is is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
María Kristinsdóttir
Tölvupóstur: maria.kristinsdottir@heilsugaeslan.is
Halldóra Aguirre
Tölvupóstur: halldora.aguirre@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbær
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026