Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í styrktarsjóðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.06.2026
Umsóknarfrestur
29.06.2026
Sérfræðingur í styrktarsjóðum
Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir sérfræðingi til að starfa í verkefnastýringu og umsýslu sjóða tengdum Schengen -samstarfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur m.a. í sér þátttöku í stefnumótun, verkefnastjórnun, uppgjör á verkefnum og undirbúning ákvarðana er varða málefni styrktarsjóðs Evrópusambandsins um stjórnun landamæra og útgáfu áritana (Border Management and Visa Instrument), sem og samskipti við styrkþega vegna umsókna um styrk til sjóðsins, upplýsingagjöf, eftirfylgni með umsóknum, yfirferð á tölulegum gögnum vegna umsókna, framvinduskýrslum ásamt því að annast vefsíðu sjóðsins.
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
Reynsla af stefnumótun er kostur
Þekking á reglum og verkferlum sjóða Evrópusambandsins er kostur
Þekking á opinberum innkaupum er kostur
Reynsla af vinnu við fjárhagsleg gögn kostur
Góð tök á íslensku og ensku
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt sem og í hóp
Þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi til að sinna starfinu. Umsóknir skulu sendar gegnum starfatorg og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Um fullt starf er að ræða er að ræða og gilda umsóknir í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í styrktarsjóðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.06.2026
Umsóknarfrestur
29.06.2026