Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

75-90%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

04.09.2026

Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri

Laus er til umsóknar 75-90% staða iðjuþjálfa við Sjúkrahúsið á Akureyri. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.

Við Sjúkrahúsið á Akureyri starfa iðjuþjálfar á bráðadeildum sem og á endurhæfingardeild SAk, en þar er starfsemin rekin á legudeild, dag- og göngudeild.

Næsti yfirmaður er yfiriðjuþjálfi á SAk.

Helstu verkefni og ábyrgð

Staðan er fjölbreytt og gefur tækifæri til að takast á við margbreytileg og spennandi verkefni ásamt því að hafa áhrif á áframhaldandi uppbyggingu iðjuþjálfunar innan stofnunarinna. Helstu verkefni iðjuþjálfa eru mat og þjálfun í athöfnum daglegs lífs, fjölskyldufundir, mat á þörf fyrir hjálpartæki og útvegun þeirra, heimilisathuganir fyrir útskrift og eftirfylgd.

Iðjuþjálfi heldur fræðslu fyrir starfsfólk sjúkrahússins og sinnir beiðnum m.a. um mat og ráðgjöf á vinnuaðstöðu.

Í gildi er starfssamningur milli SAk og Háskólans á Akureyri um kennslu, rannsóknir og endurmenntun.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi

  • Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu, reynslu og áhuga, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfileika í samskiptum og samvinnu

  • Reynsla af starfi iðjuþjálfa á sérgreinasjúkrahúsi er kostur

  • Þekking og reynsla af teymisvinnu er kostur

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 75-90%

Umsóknarfrestur er til og með 04.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hafrún Lilja Halldórsdóttir

Staðgengill yfiriðjuþjálfa

Tölvupóstur: hlh1120@sak.is

Sími: 463-0100

Sólveig Pétursdóttir

Þjónustustjóri og yfirlæknir endurhæfinga- og öldrunarlækninga

Tölvupóstur: sp0918@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Iðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

75-90%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

04.09.2026