Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Innviða­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofustjóri á sviði netöryggis og fjarskipta

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.07.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026

Skrifstofustjóri á sviði netöryggis og fjarskipta

Innviðaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu netöryggis og fjarskipta.Hlutverk skrifstofunnar er að vinna að stefnumótun, þróun og samhæfingu á sviði fjarskipta og netöryggis. Starfsemi hennar snýr að mótun laga og reglna, þróun opinberrar stefnu, alþjóðlegu samstarfi og eftirfylgni með málaflokkum sem hafa vaxandi þýðingu fyrir öryggi, samkeppnishæfni og samfélagsþróun.

Leitað er að öflugum leiðtoga sem býr yfir þekkingu og reynslu, framúrskarandi samstarfshæfni, brennandi áhuga og metnaði til að ná árangri í þágu samfélagsins.

Skrifstofustjóri leiðir starf skrifstofunnar í samstarfi við hóp sérfræðinga. Skrifstofan vinnur í nánu samstarfi við stjórnvöld, eftirlitsaðila, atvinnulíf og alþjóðlega samstarfsaðila að því markmiði að efla öryggi og seiglu fjarskipta- og upplýsingainnviða landsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mótun og eftirfylgni stefnu stjórnvalda á sviði fjarskipta og netöryggis.

  • Stjórnun, áætlanagerð, forgangsröðun verkefna og eftirfylgni með árangri.

  • Leiða undirbúning lagafrumvarpa og reglugerða þ.m.t. innleiðingu Evrópulöggjafar.

  • Stýra og samhæfa verkefnum sem tengjast öryggi og seiglu fjarskipta- og stafrænna innviða í samstarfi við hagaðila.

  • Samstarf við stofnanir, sveitarfélög, atvinnulíf og aðra hagaðila.

  • Alþjóðlegt samstarf á sviði fjarskipta og netöryggis.

  • Fagleg ráðgjöf til ráðherra og ráðuneytisstjóra.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi ásamt meistaraprófi eða mikilli reynslu sem nýtist í starfi.

  • Þekking og reynsla af sviði fjarskipta og netöryggis er æskileg.

  • Reynsla á sviði nýsköpunar og tækni er æskileg.

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.

  • Árangursrík reynsla af stjórnun, stefnumótun og áætlanagerð er æskileg.

  • Framsýni, metnaður og framúrskarandi samskiptafærni.

  • Færni í að skapa liðsheild ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu hugarfari.

  • Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Innviðaráðherra skipar í embættið til fimm ára að undangengnu mati hæfisnefndar, sem starfar samkvæmt reglum nr. 393/2012. Hvetur ráðuneytið alla hæfa einstaklinga til að sækja um, óháð kyni. Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2026.

Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, þar sem fram koma upplýsingar um menntun og fyrri störf, ásamt kynningarbréfi með upplýsingum um ástæðu umsóknar og árangur sem umsækjandi hefur náð í starfi og telur að nýtist embættinu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingilín Kristmannsdóttir

Ráðuneytisstjóri

Tölvupóstur: ingilin.kristmannsdottir@irn.is

Þóra Björk Eysteinsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: thora.bjork.eysteinsdottir@irn.is

Þjónustuaðili

Innviða­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofustjóri á sviði netöryggis og fjarskipta

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.07.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026