Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ert þú að leita að hjúkrunarstarfi sem skiptir raunverulega máli?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

29.07.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026

Ert þú að leita að hjúkrunarstarfi sem skiptir raunverulega máli?

Hjúkrunarfræðingar með sérþekkingu í öldrunarþjónustu eru að verða meðal verðmætustu sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu þar sem þjóðin er að eldast. Að velja þessa sérgrein opnar dyr að forystu, framhaldsnámi og sérhæfðum störfum. Hjúkrun þessa hóps skerpir klíníska dómgreind, samskipti, mat, endurhæfingu og leiðtogahæfileika.

Ef þú hefur áhuga vertu þá með í teyminu okkar sem hjúkrunarfræðingur fyrir eldri fullorðna og þú getur stuðlað að því að dagur einhvers verður betri og stuðlað að því að einstaklingar eldist með reisn. Við á bráðaöldrunarlækningadeild erum að leita að hjúkrunarfræðingi sem býr yfir fagmennsku, skilningi og mætir með lífsgleði á hverja vakt.

Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur. Því gefst gott tækifæri til starfsþróunnar og öðlast fjölþætta reynslu. Eldri fullorðnir eru oft með flóknar heilbrigðisþarfir sem fela í sér margar greiningar og félagslegar áskoranir.

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs hjúkrunarfræðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ákveður, skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga og ber ábyrgð á meðferð

  • Veitir fræðslu til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Virk þátttaka í þróun og umbótum í starfi deildarinnar

  • Verkefnavinna

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Áhugi á hjúkrun aldraðra

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sólbjörg Sólversd. Vestergaard

Tölvupóstur: solbjorg@landspitali.is

Sími: 824-1204

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ert þú að leita að hjúkrunarstarfi sem skiptir raunverulega máli?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

29.07.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026