
Þjónustuaðili
Ráðgjafar- og greiningarstöð
Upplýsingar um starf
Starf
Þroskaþjálfi/SIS sérfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026
Þroskaþjálfi/SIS sérfræðingur
Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings við Mat á stuðningsþörf. Leitað er að sérfræðingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að verkefnum tengdum stuðningsþörfum fatlaðra barna og fullorðinna og mati á umfangi stuðningsþarfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
Framkvæmd Staðlaðs mats á umfangi stuðningsþarfa fyrir börn og fullorðna (Supports Intensity Scale)
Þátttaka í fagteymi
Þátttaka í fræðslustarfi, þróunarverkefnum og rannsóknum innan og utan stofnunar
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem þroskaþjálfi
Reynsla af störfum með fötluðum börnum og fullorðnum
Þekking á notkun matskerfa og tölfræði
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og hæfni til að starfa í teymi
Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og skipulagshæfni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Þroskaþjálfafélag Íslands hafa gert.
Umsókn um starfið skal fylgja upplýsingar um menntun, ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu**.** Sótt er um starfið á starfatorg.is. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar.
Á Ráðgjafar- og greiningarstöð starfa tæplega 60 starfsmenn. Ráðgjafar- og greiningastöð er með fjölskylduvæna mannauðsstefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar. Gildi stofnunarinnar eru fagmennska, framsækni, velferð og virðing.
Samkvæmt samningi við Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sér stofnunin um mat á stuðningsþörf fatlaðra á landsvísu. Matið er framkvæmt í heimabyggð þjónustunotenda og felur starfið því í sér töluverð ferðalög. Um er að ræða sérhæft starf sem krefst þjálfunar sem veitt er í upphafi.
Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Ráðgjafar- og greiningarstöð
Upplýsingar um starf
Starf
Þroskaþjálfi/SIS sérfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026