
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á storkumeinastöð, dagvinna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026
Hjúkrunarfræðingur á storkumeinastöð, dagvinna
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa við umsjón blóðþynningar á storkumeinastöð á Landspítala. Unnið er í dagvinnu. Starfshlutfall er 40-60% eða eftir nánara samkomulagi.
Á storkumeinastöð Landspítala starfar hópur fagfólks sem leggur áherslu á vandaða þjónustu, öryggi sjúklinga og góða teymisvinnu.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á sjálfstæðu og fjölbreyttu starfi við umsjón blóðþynningarmeðferðar. Starfið felur í sér náin samskipti við sjúklinga, fræðslu og ráðgjöf ásamt mikilvægu hlutverki í að tryggja örugga og árangursríka meðferð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í skömmtun segavarnarlyfja ásamt fræðslu, ráðgjöf og umsjón með sjúklingum í blóðþynningarmeðferð.
Hæfniskröfur
Hjúkrunarfræðingur með íslenskt starfsleyfi
Reynsla af klínískum störfum með sjúklinga
Mjög góð íslenskukunnátta ásamt góðri kunnáttu í ensku
Góð samskiptahæfni, nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að vinna undir álagi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 105
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. is is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á storkumeinastöð, dagvinna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026