
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Klínískur lyfjafræðingur - Heilsugæslan Hlíðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20%
Starf skráð
07.07.2026
Umsóknarfrestur
17.07.2026
Klínískur lyfjafræðingur - Heilsugæslan Hlíðum
Klínískur lyfjafræðingur óskast í 20% ótímabundið starf við Heilsugæsluna Hlíðum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Hlíðum starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu.
Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).
Helstu verkefni og ábyrgð
Stofnun og umsýsla miðlægs lyfjakorts
Framkvæmd lyfjarýnis og yfirferð skömmtunarkorta skjólstæðinga
Aðstoð við niðurtröppun og afvísun lyfja, þar á meðal gerð einstaklingsmiðaðra áætlana og eftirfylgni við þær
Móttaka, ráðgjöf og mat á lyfjatengdum málum skjólstæðinga, svo sem aukaverkunum, milliverkunum og öðrum lyfjatengdum einkennum í þverfaglegu samstarfi
Fræðsla og ráðgjöf til skjólstæðinga um lyf og lyfjameðferðir
Þátttaka í þverfaglegu samstarfi, fræðslu og miðlun þekkingar innan heilsugæslunnar þar á meðal ráðgjöf til heilbrigðisstarfsfólks um lyfjatengd mál
Umsýsla og svörun lyfjatengdra erinda í Heilsuveru ("Mínum síðum")
Samskipti við Lyfjastofnun og heildsala m.a. vegna lyfjaskorts og tilkynninga um aukaverkanir
Handleiðsla starfsfólks og/eða nema og þátttaka í þróunarstarfi
Hæfniskröfur
Cand.Pharm/MSc í lyfjafræði
MS í klínískri lyfjafræði
Starfsleyfi útgefið af Landlækni
A.m.k. 3 ára starfsreynsla sem klínískur lyfjafræðingur
Reynsla af starfi í heilsugæslu kostur
Góð almenn tölvuþekking (word, excel, powerpoint, outlook).
Almenn þekking á sjúkraskrárkerfum s.s. Sögu og Heilsugátt
Mjög góð tök á rituðu íslensku máli
Almenn enskukunnátta
Færni til að vinna í þverfaglegu teymi
Mjög góðir samskiptahæfileikar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttinda stefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 20%
Umsóknarfrestur er til og með 17.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Klínískur lyfjafræðingur - Heilsugæslan Hlíðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20%
Starf skráð
07.07.2026
Umsóknarfrestur
17.07.2026