Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi vestra

Upplýsingar um starf

Starf

Lausar stöður lögreglumanna - Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Lausar stöður lögreglumanna - Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra auglýsir lausar til umsóknar fimm stöður lögreglumanna í almennri deild. Um er að ræða eitt stöðugildi við starfsstöð embættisins á Hvammstanga, tvö stöðugildi við starfsstöð Blönduósi og tvö stöðugildi á Sauðárkróki.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um verkefni og ábyrgð lögreglumanna er fjallað í 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 11. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar nr. 1051/2006 þar sem fram kemur að hlutverk lögreglu séu m.a., að gæta almannaöryggis og halda uppi lögum og reglu. Leitast við að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda eignarrétt, opinbera hagsmuni og hvers konar lögmæta starfsemi. Stemma stigu við afbrotum og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og ríkisins auk þess að vinna að uppljóstran brota, stöðva ólögmæta háttsemi og fylgja málum eftir í samræmi við það sem mælt er fyrir um í lögum, ásamt því ð að greiða götu borgaranna eftir því sem við á og aðstoða þá þegar hætta steðjar að.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu:

  • Hafa lokið prófi frá lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngilda a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar.

  • Hafa framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp.

  • Vera sjálfstæðir og sveigjanlegir í starfi og búa yfir skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum.

  • Vera lausnamiðaðir og jákvæðir og geta sýnt frumkvæði í störfum sínum.

  • Hafa góða íslensku- og enskukunnáttu, bæði í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Um er að ræða 100% starfshlutfall í vaktavinnu með bakvaktaskyldu og eru laun skv. kjarasamningi Landssambands lögreglumanna og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs.

Umsækjendur eru beðnir um að geta þess í umsókn sinni hvaða starfsstöð þeir óska eftir að starfa á.

Embættið leggur áherslu á jafnrétti kynja og hvetur því fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Athygli umsækjenda er bent á að ekki er heimilt að skipa manneskju eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára, eða sýnt af sér háttsemi sem rýrt getur það traust sem nauðsynlegt er að starfsmenn lögreglu njóti. Til að staðreyna framangreint er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu, sbr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Pétur Björnsson

Yfirlögregluþjónn

Tölvupóstur: pb01@logreglan.is

Sími: 4440700

Sigurður Hólmar Kristjánsson

Lögreglustjóri

Tölvupóstur: shk01@logreglan.is

Sími: 4440700

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi vestra

Upplýsingar um starf

Starf

Lausar stöður lögreglumanna - Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026