Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

FSRE

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjórar á framkvæmdasviði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Verkefnastjórar á framkvæmdasviði

Hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum (FSRE) leiða verkefnastjórar framkvæmdir sem móta aðstöðu m.a. fyrir heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, menningu og náttúruvernd um allt land. Nú leitum við að metnaðarfullum og lausnamiðuðum verkefnastjórum í öflugan hóp á framkvæmdasviði. Verkefnin eru af ólíkri stærð og flækjustigi, og ábyrgð og umfang taka mið af reynslu hvers og eins. Því eiga bæði verkefnastjórar sem eru að byggja upp reynslu sína og reyndir verkefnastjórar erindi í hópinn.

Sem verkefnastjóri leiðir þú fjölbreytt verkefni frá hönnun til afhendingar mannvirkja, allt frá nýbyggingum og endurbótum á húsnæði ríkisins til uppbyggingar ofanflóðavarna og náttúruinnviða. Meðal stærri verkefna sviðsins um þessar mundir eru nýtt öryggisfangelsi, verknámshús Fjölbrautaskólans í Breiðholti og ný hjúkrunarheimili að Ási, við Nauthólsveg og á Húsavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefnastjórn í mannvirkjagerð á stigi hönnunar og/eða framkvæmda, með fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð verkefna

  • Gerð þarfa- og kostnaðargreininga og kostnaðar- og tímaáætlana

  • Umsjón með útboðsferli framkvæmdaverkefna

  • Mat á viðhalds- og endurbótaþörf fasteigna í samráði við önnur svið FSRE

  • Þátttaka í þróun lausna í samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunarinnar

  • Þátttaka í framþróun verkefnastjórnunar, sem og annarra umbótaverkefna

  • Yfirferð og samþykkt reikninga

  • Samskipti við verktaka, hönnuði, birgja og notendur vegna framkvæmda og hönnunar

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Menntun, vottun eða reynsla í verkefnastjórn

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og rík hæfni í teymisvinnu

  • Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð, þjónustumiðuð vinnubrögð

  • Geta til að vinna undir álagi og halda utan um mörg verkefni samtímis

  • Góð tök á Microsoft 365 (t.d. Word, Excel og PowerPoint)

  • Góð tök á Microsoft Project

  • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti

Eftirfarandi telst til kosta

  • Menntun á sviði mannvirkjagerðar (t.d. verk-, tækni-, byggingafræði eða arkitektúr)

  • Reynsla af hönnun og/eða verklegum framkvæmdum

  • Þekking á upplýsingalíkönum (BIM)

  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu

  • Þekking á stafrænni þróun

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um FSRE

FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflun húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar, með það að leiðarljósi að afla góðs en hagkvæms húsnæðis í allra þágu. Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins, 530 þúsund m² húsnæði í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Hjá FSRE starfa um 70 sérfræðingar með breiða þekkingu á sviði fasteignaumsýslu, framkvæmda og eignastýringar.

Umsókn

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn óskast fyllt út á Starfatorgi og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga Hanna Guðmundsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: inga.gudmundsdottir@fsre.is

Valur Indriði Örnólfsson

Framkvæmdastjóri

Tölvupóstur: valur.indridi.ornolfsson@fsre.is

Þjónustuaðili

FSRE

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjórar á framkvæmdasviði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026