Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í upplýsingatækni

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026

Sérfræðingur í upplýsingatækni

Við leitum að metnaðarfullum og kraftmiklum sérfræðing til að sinna fjölbreyttum og spennandi verkefnum á sviði upplýsingatækni. Sérfræðingur kemur að rekstri á tölvu- og tæknikerfum, tryggir öryggi í upplýsingatækni, veitir notendaaðstoð s.s. uppsetningu á tölvum og tækjabúnaði. Í starfinu felst einnig val, innleiðing og þróun á kerfum. Auk þess er í smíðum nýtt upplýsingatæknikerfi fyrir stofnunina sem byggir á Microsoft Power Platform og er mjög umfangsmikið verkefni innan upplýsingatæknideildar stofnunarinnar. Umtalsvert samstarf er við upplýsingatæknisvið Ríkislögreglustjóra auk annarra stofnana og fyrirtækja. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri.

Útlendingastofnun er vinnustaður þar sem lögð er áhersla á stafræna þróun og umbætur. Hjá stofnuninni starfar samhentur hópur rúmlega 100 starfsmanna á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, sveigjanlegan vinnutíma og kost á fjarvinnu. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Notendaaðstoð

  • Aðkoma að uppbyggingu nýs upplýsingatæknikerfis sem byggir á Microsoft Power Platform

  • Verkefnastjórnun

  • Þróun og rekstur tölvukerfa

  • Koma auga á tækifæri fyrir nýsköpun og sjálfvirknivæðingu

  • Þátttaka í innlendum og alþjóðlegum samstarfsverkefnum

  • Samvinna og ráðgjöf við notendur og hagaðila

Hæfniskröfur

  • Menntun í tölvunarfræði, kerfisstjórn eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Þekking á Microsoft Power Platform, AD, Azure og M365 er góður kostur

  • Reynsla af notendaþjónustu

  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur

  • Reynsla af innleiðingu og rekstri tölvukerfa

  • Reynsla af forritun er kostur

  • Áhugi á sjálfvirknivæðingu

  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund

  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá að hámarki 2 bls. og kynningarbréf sem er að hámarki 1 bls. á íslensku. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.

Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað verður. Í einstaka tilfellum leggur stofnunin einnig verkefni fyrir umsækjendur í ráðningarferlinu.

Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 6 mánaða reynslutíma. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf eigi síðar en 1. september nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Vakin er athygli á því að umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir til að framvísa sakavottorði.

Tekið er við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs.

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Íris Kristinsdóttir

Tölvupóstur: iris@utl.is

Birkir Örn Hauksson

Tölvupóstur: birkir@utl.is

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í upplýsingatækni

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026