Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma

Vilt þú starfa þar sem fagmennska, teymisvinna og þróun hjúkrunar fara saman?

Á legudeild geðrofssjúkdóma gefst þér tækifæri til að sinna fjölbreyttri og krefjandi geðhjúkrun þar sem klínísk dómgreind, samskiptafærni og sjálfstæði í starfi fá að njóta sín.

Við leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á geðhjúkrun og vill taka þátt í að veita einstaklingum með geðrofssjúkdóma örugga, einstaklingsmiðaða og batamiðaða þjónustu. Starfið hentar jafnt nýútskrifuðum sem reyndum hjúkrunarfræðingum sem vilja efla þekkingu sína og vaxa í starfi.

Legudeild geðrofssjúkdóma er 16 rúma sérhæfð legudeild sem sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu einstaklinga með geðrofssjúkdóma. Á deildinni starfar öflugt þverfaglegt teymi þar sem rík áhersla er lögð á samstarf, faglega þróun og góðan starfsanda.

Við leggjum metnað í að styðja hjúkrunarfræðinga í starfi. Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar eiga kost á sérhæfðu starfsþróunarári með markvissri handleiðslu og fræðslu. Reynslumiklir hjúkrunarfræðingar fá jafnframt tækifæri til að þróa klíníska sérþekkingu, taka þátt í umbótastarfi og hafa áhrif á áframhaldandi þróun geðhjúkrunar.

Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Vinnuvika starfsfólks í fullu starfi er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða og skipuleggja hjúkrun á vakt með yfirsýn yfir hjúkrunarþarfir og öryggi sjúklinga

  • Veita einstaklingsmiðaða hjúkrun og styðja við bataferli

  • Byggja upp meðferðarsamband og veita sjúklingum og aðstandendum stuðning og fræðslu

  • Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi

  • Þjálfun og stuðningur við nema og annað starfsfólk

  • Virk þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Áhugi á geðhjúkrun og batamiðaðri þjónustu

  • Reynsla af geðhjúkrun er kostur

  • Framhaldsnám í geðhjúkrun er kostur

  • Áhugi á fjölskyldumiðaðri nálgun og samstarfi við aðstandendur

  • Faglegur metnaður og áhugi á umbótum og þróun hjúkrunar

  • Góð samskiptafærni og hæfni til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðfinna Betty Hilmarsdóttir

Tölvupóstur: gudfinna@landspitali.is

Sími: 824-6022

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026