Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Klínískur lyfjafræðingur - Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.07.2026
Umsóknarfrestur
31.07.2026
Klínískur lyfjafræðingur - Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 100% staða klínísks lyfjafræðings í Lyfjaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri. Um nýtt og spennandi framtíðarstarf er að ræða í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi sem býður upp á mikla möguleika. Um er að ræða dagvinnustarf. Staðan veitist frá 01.09.2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Jóna Valdís Ólafsdóttir, deildarstjóri lyfjaþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veitir klíníska lyfjafræðiþjónustu á deildum, sinnir klínískum störfum á sínu fagsviði, veitir ráðgjöf og tekur þátt í teymisvinnu innan lyfjaþjónustu og utan
Tekur þátt í viðhaldi og uppfærslum á lyfjafyrirmælakerfi
Tekur þátt í uppbyggingu gæðakerfis
Tekur þátt í og styður við innleiðingu á árangursvísum, gæðavísum og starfsemistölum
Tekur þátt í frekari uppbyggingu og þróun lyfjaþjónustu
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem lyfjafræðingur
Meistarapróf í klínískri lyfjafræði eða sambærileg sérmenntun
Reynsla á sviði klínískrar vinnu innan sjúkrahúss
Reynsla af handleiðslu nema og sérnámslyfjafræðinga er kostur
Góð hæfni í íslensku og ensku
Góð tölvukunnátta
Nákvæm, skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni, öflugur liðsmaður og jákvætt viðmót
Frumkvæði, þjónustulund og áhugi á að þroskast í starfi
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Lyfjafræðingafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Klínískur lyfjafræðingur - Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.07.2026
Umsóknarfrestur
31.07.2026