
Þjónustuaðili
Fjarskiptastofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í radíómælingum og fjarskiptainnviðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.08.2026
Umsóknarfrestur
27.08.2026
Sérfræðingur í radíómælingum og fjarskiptainnviðum
Vilt þú mæla, greina og móta framtíð fjarskipta á Íslandi?
Hvað gerist þegar fjarskiptamerki truflast? Hvernig vitum við hvort farnet nái þeirri útbreiðslu og þeim þjónustugæðum sem kveðið er á um í tíðniheimildum? Og hvernig tryggjum við að fjarskiptainnviðir Íslands standist álag þegar mest reynir á?
Fjarskiptastofa leitar að tæknisinnuðum, forvitnum og lausnamiðuðum sérfræðingi til starfa á Innviðasviði.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fjarskiptatækni og vill vinna við fjölbreytt verkefni þar sem radíómælingar, tæknileg greining, gögn og fjarskiptainnviðir landsins mætast.
Þetta er ekki starf þar sem allir dagar eru eins: einn daginn gætir þú verið að mæla og greina radíótruflun, annan daginn að vinna úr gögnum um útbreiðslu farneta og þann þriðja að taka þátt í verkefni sem snýr að því að tryggja fjarskipti á Íslandi þegar á reynir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Framkvæmd radíómælinga og annarra tæknilegra mælinga á fjarskiptakerfum á vettvangi víðs vegar um landið, ásamt greiningu og úrvinnslu mæligagna.
Greining radíótruflana, þátttaka í úrlausn truflanamála og eftirlit með nýtingu ljósvakans.
Mælingar og greiningar á útbreiðslu og þjónustugæðum farneta, m.a. til að meta hvort skilyrði tíðniheimilda séu uppfyllt.
Vinna með tíðnigögn, kortagögn, gagnagrunn almennra fjarskipta (GAF) og önnur tæknileg gögn um fjarskiptainnviði, ásamt greiningu og úrvinnslu gagna og vinnu að gagnagæðum.
Þátttaka í verkefnum tengdum áfallaþoli, rekstraröryggi, gervihnattafjarskiptum og nýrri fjarskiptatækni.
Samskipti við fjarskiptafyrirtæki, almenning, stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila, auk þátttöku í innlendu og alþjóðlegu samstarfi.
Önnur tilfallandi verkefni Innviðasviðs.
Hverjum erum við að leita að?
Við horfum ekki eingöngu til ákveðins starfsheitis eða hefðbundins starfsferils heldur leitum að einstaklingi með tæknilegan áhuga, greiningarhæfni og löngun til að skilja hvernig hlutirnir virka. Þú gætir til dæmis komið úr fjarskiptum, rafmagns- eða rafeindatækni, tæknifræði, upplýsingatækni eða öðru tæknilegu umhverfi.
Það sem skiptir okkur máli er að þú hafir gaman af því að takast á við tæknileg viðfangsefni, vinna með gögn og mælingar og leita svara við spurningunni: Hvað er að gerast og hvers vegna?
Hæfniskröfur
Háskólapróf í verkfræði, tæknifræði, upplýsinga- eða fjarskiptatækni eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi, eða viðamikil og viðeigandi starfsreynsla af fjarskiptakerfum.
Þekkingu eða reynslu af radíókerfum.
Góða tæknilega færni og áhuga á að tileinka sér nýja tækni og aðferðir.
Greiningarhæfni, nákvæm og öguð vinnubrögð og hæfni til sjálfstæðra vinnubragða.
Góða samskipta- og samstarfshæfni.
Góða færni í íslensku og ensku.
Gild ökuréttindi eru skilyrði þar sem starfið felur í sér reglulegar vettvangsferðir vegna mælinga.
Það er kostur ef þú hefur þekkingu eða reynslu af:
Farnetum, tíðnimálum eða útbreiðslu radíómerkja.
Greiningu og úrvinnslu tæknilegra gagna.
SQL, gagnagrunnum og úrvinnslu gagna.
GIS, kortagögnum eða útbreiðslulíkönum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Sækja skal um starfið rafrænt á Starfatorgi. Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir menntun, reynslu og hæfni umsækjanda með hliðsjón af verkefnum og hæfniskröfum starfsins. Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2026.
Umsóknir verða metnar á grundvelli menntunar, starfsreynslu, tæknilegrar þekkingar og hæfni til að vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra að fjölbreyttum verkefnum á sviði fjarskiptainnviða.
Öryggisvottun
Forsenda ráðningar er að umsækjandi hafi hreint sakavottorð og standist öryggisvottun á grundvelli varnamálalaga, eftir því sem við á. Öryggisvottun felur í sér bakgrunnsskoðun sem fer fram í samræmi við lög og reglur og er hluti af ráðningarferlinu vegna eðlis verkefna og aðgangs að upplýsingum.
Fjarskiptastofa hvetur áhugasama til að sækja um starfið, óháð kyni og uppruna.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019.
Af hverju Fjarskiptastofa?
Fjarskipti eru meðal mikilvægustu innviða íslensks samfélags. Þau þurfa að virka alla daga, en mikilvægi þeirra verður hvað sýnilegast þegar eitthvað fer úrskeiðis eða samfélagið stendur frammi fyrir áföllum.
Á sama tíma eru fjarskipti í örri þróun: farnet þróast hratt, gervihnattafjarskipti verða mikilvægari og ný tækni breytir því hvernig við byggjum upp og tryggjum fjarskipti.
Hjá Fjarskiptastofu færðu tækifæri til að vinna með sérfræðingum að verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á mikilvæga innviði landsins og byggja upp sérþekkingu á sviði sem verður sífellt mikilvægara.
Þú færð ekki aðeins að mæla hvernig fjarskiptakerfi Íslands virka í dag, þú færð að taka þátt í að gera þau betri og undirbúa þau fyrir framtíðina.
Um Fjarskiptastofu
Fjarskiptastofa vinnur að því að tryggja hagkvæma, örugga og aðgengilega fjarskiptaþjónustu og stuðla að virkri samkeppni og öflugu netöryggi.
Fjarskiptastofa starfar í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi þar sem tækniframfarir, öryggismál og alþjóðlegt regluverk móta starfsemina. Flestir starfsmenn stofnunarinnar taka þátt í alþjóðlegum verkefnum og samstarfi.
Hjá Fjarskiptastofu starfa um 35 manns, aðallega sérfræðingar á sviði fjarskipta, netöryggis, tæknimála, viðskipta og laga.
Fjarskiptastofa er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samstarf, vellíðan starfsfólks og góðan starfsanda.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjarskiptastofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í radíómælingum og fjarskiptainnviðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.08.2026
Umsóknarfrestur
27.08.2026