
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á legudeild lyndisraskana Kleppi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026
Sjúkraliði á legudeild lyndisraskana Kleppi
Áhugasamur og metnaðarfullur sjúkraliði óskast til starfa á legudeild lyndisraskana Kleppi. Deildin er opin 12 rúma legudeild og sinnir meðferð einstaklinga með lyndisraskanir og fjölþættan vanda. Deildin vinnur einnig í nánu samstarfi við meðferðarteymi göngudeildar lyndisraskana. Á deildinni er unnið fjölbreytt og sérhæft starf sem einkennist af góðum starfsanda, virkri og stöðugri framþróun og í boði eru ótal tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Við leitum eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi með mjög góða samskiptahæfni. Viðkomandi þarf að búa yfir skapandi hugsun og hafa metnað og áhuga á að starfa við endurhæfingu.
Um er að ræða 80-100% starf sem er laust frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er á breytilegum dag-, kvöld- og helgarvöktum.
Við hvetjum öll til að sækja um og áhugasamir geta haft samband við Díönu, deildastjóra fyrir nánari upplýsingar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur
Virk þátttaka í þverfaglegu teymi
Hjúkrun, umönnun og stuðningur við sjúklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Fylgir einstaklingum eftir í daglegri virkni, framfylgir meðferðarsamningum og meðferðaráætlunum og ber ábyrgð á ákveðnum skráningum
Tekur þátt í meðferðarvinnu í samráði við teymi sjúklings
Tekur þátt í og sér um að fyrirliggjandi dagskrá deildar hverju sinni sé framfylgt
Umsjón með fjölbreyttum og sérhæfðum verkefnum í samráði við deildastjóra
Stuðlar að góðum samstarfsanda
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Áhugi á að starfa með einstaklingum með geðraskanir skilyrði
Starfsreynsla af geðhjúkrun er kostur
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni og vilji til að vinna í þverfaglegu teymi
Stundvísi og áreiðanleiki
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli, viðbótartungumálakunnátta er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5
Staðsetning: Kleppsgarðar, 104 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á legudeild lyndisraskana Kleppi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026