Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í ítölsku

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

11.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Aðjúnkt í ítölsku

Laust er til umsóknar 50% starf aðjúnkts í ítölsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Ítalska er kennd sem byrjendanám, sem eins árs diplómanám og einnig til BA-gráðu. Innan greinarinnar eru kennd námskeið í m.a. talþjálfun, málfræði og málnotkun. Að auki er boðið upp á námskeið í ítalskri menningu og sögu. Á Hugvísindasviði er lögð áhersla á þróun um kennslu í annarsmálsfræðum og oft í samstarfi við önnur fræðasvið Háskólans. Starfsskyldur aðjúnktsins skiptast í 90% kennslu og prófavinnu og 10% í þjónustu- og stjórnunarverkefni við námsgreinina.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla í ítölsku í diplóma- og BA-námi.

  • Þátttaka í stjórnun á vegum deildar/námsgreinar, þ.m.t. seta í nefndum og öðrum störfum deildar

  • Þátttaka í þróun námsgreinarinnar innan deildar

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í ítölsku eða ítölskum málvísindum.

  • Menntun á sviði kennslufræði er æskileg.

  • Ítalska sem móðurmál eða ítölskukunnátta á háu stigi (samsvarandi C2).

  • Góð íslenskukunnátta.

  • Kennslureynsla á háskólastigi.

  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 20. ágúst 2026.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Ritaskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Félag háskólakennara Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert. is is

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Stefano Rosatti

Tölvupóstur: rosatti@hi.is

Sími: 5254716

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í ítölsku

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

11.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026