Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður á rannsóknarstofu HSA - Egilsstaðir

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

20%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Aðstoðarmaður á rannsóknarstofu HSA - Egilsstaðir

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann á rannsóknarstofu HSA á heilsugæslustöð Egilsstaða. Starfshlutfall er 20% og vinnutíminn er tveir virkir morgnar í viku. Staðan veitist frá 1. september næstkomandi eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Annast blóðtökur og ákveðin verkefni undir eftirliti lífeindafræðings.

Hæfniskröfur

Sjúkraliðamenntun eða önnur heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi skilyrði. Reynsla af heilbrigðisþjónustu er æskileg. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta er áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 20%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Steinunn Björg Þórhallsdóttir

Tölvupóstur: steinunn.thorhallsdottir@hsa.is

Magnfríður Ólöf Pétursdóttir

Tölvupóstur: magnfridur.o.petursdottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður á rannsóknarstofu HSA - Egilsstaðir

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

20%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026