Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Dagvinna á Laugarásnum meðferðargeðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

16.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026

Hjúkrunarfræðingur - Dagvinna á Laugarásnum meðferðargeðdeild

Skemmtilegt og lærdómsríkt starf - frábært samstarfsfólk - góður starfsandi - tækifæri til að þróa hæfni í geðhjúkrun, málastjórn, teymisvinnu og samskiptum.

Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á Laugarásnum, meðferðargeðdeild innan geðþjónustu Landspítala. Laugarásinn er sérhæfð legu- og dagdeild fyrir ungt fólk á aldrinum 18-35 ára með geðrofssjúkdóma á byrjunarstigi. Þar fer fram fjölbreytt starf í snemmíhlutun þar sem hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki. Í starfinu felst bæði málastjórn sem og ábyrgð á sérhæfðum verkefnum hjúkrunar.

Starfsemi Laugarássins er í stöðugri þróun og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og virkt samstarf við aðstandendur. Á deildinni starfa um 40 einstaklingar og einkennist samstarfið af þverfaglegri nálgun, krefjandi greiningarvinnu og góðum starfsanda. Lögð er sérstök áhersla á starfsþróun, m.a. fær starfsfólk þjálfun og handleiðslu í áhugahvetjandi samtalstækni og grunnþáttum hugrænnar atferlismeðferðar. Mikið er lagt upp úr virku umbótastarfi og lögð er áhersla á virka þátttöku hjúkrunarfræðinga og annarra fagstétta þegar kemur að því að þróa og bæta þjónustuna.

Nýliðar í hjúkrun sem og reynslumeiri hjúkrunarfræðingar eru hvattir til þess að sækja um. Hjúkrunarfræðingar í geðþjónustu Landspítala hafa tækifæri til þess að hljóta sérhæfða fagþjálfun hjá sérfræðingi í geðhjúkrun sem hefur reynst vel fyrir starfsþróun og framgang í starfi.

Starfshlutfall er 80-100% og er um dagvinnu að ræða, ásamt því að bakvaktir tilheyra starfinu eftir sex mánaða reynslutíma. Starfið er laust frá 17. ágúst 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi, fræðslustarfi og framþróun í starfi deildarinnar

  • Sérverkefni hjúkrunar sem tengjast starfi deildarinnar svo sem vaktstjórn, lyfjagjafir, eftirlit með blóðprufum, bakvaktir og yfirsýn yfir þjónustuþega hópinn

  • Fjölbreytt meðferðarstarf tengt snemmíhlutun í geðrofssjúkdóma

  • Málastjórn fyrir einstaklinga sem sækja þjónustu sem felur í sér almenna uppvinnslu, greiningu á einkennum, færni og getu sem og gerð meðferðaráætlana

  • Markvisst samstarf með aðstandendum

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi sem og einlægur áhugi á geðhjúkrun og öllu sem því starfi tengist, sér í lagi að starfa með ungu fólki

  • Reynsla af geðhjúkrun er kostur

  • Mjög góð samskiptahæfni og leiðtogahæfileikar

  • Stundvísi, áreiðanleiki og lausnamiðun

  • Færni til að hafa góða yfirsýn yfir fjölþætt starf deildarinnar

  • Jákvæðni og sveigjanleiki gagnvart hinum ýmsu störfum sem til falla í starfsemi deildarinnar

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið ear mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Laugarás, 104 Reykjavík

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. is is

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lilja Dögg Bjarnadóttir

Tölvupóstur: liljadb@landspitali.is

Sími: 824-1324

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Dagvinna á Laugarásnum meðferðargeðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

16.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026