
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Geislafræðingur í hjartaómun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
20.08.2026
Geislafræðingur í hjartaómun
Laust er til umsóknar starf geislafræðings við hjartaómun á Landspítala. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Hjartaómun er sjálfstætt starfandi eining undir hjartarannsóknarstofu og er með starfsstöðvar bæði á Hringbraut og í Fossvogi. Starfsfólk vinnur mikið sjálfstætt en einnig í samstarfi við hjartalækna. Starfsfólk fær markvissa þjálfun og öðlast mikilvæga sérþekkingu við ómun sjúklinga sem koma bæði af legudeildum og göngudeildum.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ómanir af hjarta og varðveisla gagna þar að lútandi
Úrvinnsla og túlkun niðurstaðna í samvinnu við hjartalækna
Þátttaka í öðrum verkefnum á hjartaómun eftir nánari ákvörðun stjórnanda
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi geislafræðings
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Mikill áhugi á hjartanu og starfsemi þess
Þekking og reynsla af hjartaómun er kostur
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, geislafræðingur, lífeindafræðingur, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Birgir Magnússon
Tölvupóstur: birgirma@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Geislafræðingur í hjartaómun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
20.08.2026