Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemastöður við Háskólann á Akureyri lausar til umsóknar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starf skráð

30.06.2026

Umsóknarfrestur

22.09.2026

Doktorsnemastöður við Háskólann á Akureyri lausar til umsóknar

Háskólinn á Akureyri auglýsir til umsóknar allt að þrjár fullfjármagnaðar doktorsnemastöður til fjögurra ára á fjölbreyttum fræðasviðum. Leitað er að metnaðarfullum umsækjendum sem vilja leggja sitt af mörkum til öflugra rannsókna í alþjóðlega tengdu og framsæknu fræðasamfélagi.

Háskólinn er öflugur og vaxandi rannsóknaháskóli sem hefur á undanförnum árum byggt upp sterka stöðu á alþjóðlegum vettvangi rannsókna. Þeir umsækjendur sem hljóta stöðurnar fá aðstöðu til rannsókna innan viðeigandi fræðasviðs og njóta leiðsagnar reyndra fræðimanna á sínu sérsviði.

Doktorsnemastöðurnar eru í boði á eftirfarandi fræðasviðum:

  • Félagsvísindi (félagsfræði, lögfræði og sálfræði)

  • Heilbrigðisvísindi (hjúkrunarfræði)

  • Menntavísindi (menntunarfræði)

  • Viðskipta- og raunvísindi (auðlindafræði, líftækni, sjávarútvegs- og fiskeldisfræði og viðskiptafræði)

Gert er ráð fyrir að umsækjendur móti eigin rannsóknarverkefni í samstarfi við væntanlegan leiðbeinanda. Upplýsingar um rannsóknarsvið háskólans, sérfræðiþekkingu fræðafólks og tengiliðaupplýsingar má finna á vef Háskólans á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fullfjármagnaðar doktorsnemastöður og greiðast laun samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Doktorsnemar verða ráðnir til Háskólans á Akureyri til fjögurra ára og er gert ráð fyrir að þeir hafi starfsstöð á Akureyri á námstímanum. Starfshlutfall skiptist í 75% rannsóknir og 25% kennslu. Nánara fyrirkomulag kennslu verður ákveðið í samráði við viðkomandi fræðasvið við ráðningu.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu:

  • Hafa lokið meistaraprófi á viðeigandi fræðasviði með fyrstu einkunn.

  • Sýna fram á sterka rannsóknarfærni og möguleika til árangurs í rannsóknum.

  • Leggja fram skýra hugmynd að rannsóknarverkefni sem fellur að einu af framangreindum fræðasviðum.

  • Geta unnið bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra.

Frekari upplýsingar um starfið

Umsóknarferlið fer fram í tveimur áföngum.

Fyrri áfangi – frumumsókn

Umsækjendur skila stuttri umsókn þar sem gerð er grein fyrir námsbakgrunni þeirra og rannsóknaráhuga. Áður en umsókn er lögð fram skal umsækjandi hafa haft samband við væntanlegan leiðbeinanda.

Seinni áfangi – full umsókn

Öllum umsóknum verður svarað og þeim umsækjendum sem standast fyrri áfanga verður boðið að skila fullri umsókn, þar á meðal ítarlegri rannsóknaráætlun og fylgigögnum.

Frestur til að skila fullri umsókn verður tilkynntur síðar til viðeigandi aðila.

Gert er ráð fyrir að þeir umsækjendur sem hljóta stöðurnar hefji doktorsnám í febrúar 2027.

Um Háskólann á Akureyri

Háskólinn á Akureyri býður upp á öflugt rannsóknarumhverfi með sterk tengsl við atvinnulíf og alþjóðlega samstarfsaðila. Háskólinn leggur áherslu á þverfaglegt samstarf, nýsköpun og rannsóknir sem takast á við mikilvægar samfélagslegar áskoranir.

Umsóknarfrestur er til og með 22.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Rósa Þorsteinsdóttir

Forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms

Tölvupóstur: gudrunth@unak.is

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemastöður við Háskólann á Akureyri lausar til umsóknar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starf skráð

30.06.2026

Umsóknarfrestur

22.09.2026