Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Hafrann­sókna­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Forstjóri Hafrannsóknastofnunar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.05.2026

Umsóknarfrestur

22.05.2026

Forstjóri Hafrannsóknastofnunar

Atvinnuvegaráðherra auglýsir embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, laust til umsóknar.

Hafrannsóknastofnun er sjálfstæð rannsókna- og ráðgjafarstofnun sem starfar á grundvelli laga nr. 112/2015 og heyrir undir atvinnuvegaráðherra.

Stofnunin gegnir rannsókna- og ráðgjafarhlutverki um sjálfbæra, fjölbreytta og hagkvæma nýtingu lifandi auðlinda hafs og ferskvatns. Stofnunin er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs– og vatnarannsókna og á í víðtæku samstarfi við innlendar og erlendar hafrannsóknastofnanir, háskóla og atvinnulíf.

Verkefnasvið Hafrannsóknastofnunar er fjölbreytt. Auk hefðbundinna rannsókna- og ráðgjafarverkefna er stofnuninni ætlað að stuðla að nýsköpun og tækniþróun á fagsviði sínu. Þess að auki að styðja við þróun lausna og aðferða sem auka sjálfbærni, fjölbreytni og hagkvæmni í nýtingu auðlinda og styrkja samkeppnishæfni og þekkingargrunn greinarinnar. Þá rekur stofnunin tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip og á aðild að rannsókna- og þróunarfyrirtækjum.

Við stofnunina starfa að jafnaði 190 einstaklingar á starfsstöðvum víða um land.

Helstu verkefni og ábyrgð

Forstjóri mótar helstu áherslur, verkefni og starfshætti Hafrannsóknastofnunar og ber stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð á rekstri og faglegri starfsemi eins og lög og stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um.

Forstjóri veitir ráðherra aðstoð og ráðgjöf við undirbúning og innleiðingu laga, reglugerða og annarra verkefna á sviði hafrannsókna, ásamt því að annast önnur verkefni sem stofnuninni eru falin með lögum, reglugerðum eða ákvörðun ráðherra.

Auglýst er eftir öflugum og framsýnum stjórnanda til að leiða stofnunina og innleiða breytingar sem taka mið af þróun í starfsumhverfinu. Viðkomandi þarf að hafa ótvíræða leiðtogafærni, búa yfir þekkingu og reynslu sem nýtist í starfi og uppfylla tilgreindar hæfniskröfur.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Þekking og farsæl reynsla af rekstri og fjármálastjórnun

  • Farsæl reynsla af stjórnun, stefnumótun og áætlanagerð

  • Færni í að skapa liðsheild og leiða fólk til árangurs

  • Skipulagshæfni, öguð, skilvirk og sjálfstæð vinnubrögð

  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og lagaumhverfi opinberra stofnana er kostur

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar

  • Reynsla og færni til að koma fram opinberlega og miðla upplýsingum

  • Góð hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku

  • Vald á einu Norðurlandamáli er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Atvinnuvegaráðherra skipar forstjóra Hafrannsóknastofnunar til fimm ára í senn. Fjármála- og efnahagsráðherra ákveður laun í samræmi við grunnmat starfs. Hæfir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem fram kemur ástæða umsóknar auk upplýsinga um árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í starfi forstjóra. Hæfnisnefnd skipuð af atvinnuvegaráðherra metur hæfni umsækjenda samkvæmt reglum nr. 1600/2023. Umsókn skal skila með tölvupósti á atrn@atrn.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bryndís Hlöðversdóttir

ráðuneytisstjóri í atvinnuvegaráðuneytinu

Tölvupóstur: atrn@atrn.is

Þjónustuaðili

Hafrann­sókna­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Forstjóri Hafrannsóknastofnunar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.05.2026

Umsóknarfrestur

22.05.2026