Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Mennta­sjóður námsmanna

Upplýsingar um starf

Starf

Fjármálastjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

25.05.2026

Fjármálastjóri

Menntasjóður námsmanna (MSNM) óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan fjármálastjóra til að leiða og þróa fjármálastarfsemi sjóðsins. Um er að ræða ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf þar sem reynir á greiningarhæfni, yfirsýn, frumkvæði og góða samskiptahæfni.

Fjármálastjóri gegnir lykilhlutverki í daglegri stjórnun fjármála sjóðsins og vinnur náið með framkvæmdastjóra, stjórnendum og opinberum aðilum að áætlanagerð, upplýsingagjöf og áframhaldandi þróun fjármálastýringar sjóðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á daglegri fjármálastýringu sjóðsins

  • Umsjón með gerð fjárhagsáætlana, rekstraráætlana og sjóðstreymisáætlana

  • Umsjón með bókhaldi og gerð ársreikninga

  • Eftirlit með rekstri, greiningum og eftirfylgni með fjárhagslegum markmiðum

  • Umsjón með útlánastýringu, innheimtu og endurheimtum í samstarfi við aðra stjórnendur

  • Gerð kostnaðargreininga, tölfræðivinnslu og fjárhagslegra greininga fyrir stjórnendur, stjórn og ráðuneyti

  • Ábyrgð á launavinnslu og tengdum verkefnum

  • Þróun og umbætur á verkferlum, verklýsingum og ferlum innan fjármála og bókhalds

  • Samskipti við ráðuneyti, Seðlabanka Íslands, Fjársýsluna, viðskiptabanka og aðra samstarfsaðila

  • Ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks varðandi fjárhagsleg málefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskiptafræði, hagfræði, reikningsskila eða endurskoðunar

  • Reynsla af bókhaldi, fjármálastjórnun, áætlanagerð og uppgjörsvinnu

  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og opinberum fjármálum er kostur

  • Góð greiningarhæfni og reynsla af framsetningu upplýsinga og gagna

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og færni til að hvetja aðra til árangurs

  • Framsýni, metnaður og drifkraftur

  • Góð tölvukunnátta. Þekking á Orra, fjárhagskerfi ríkisins, er kostur

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Menntasjóður námsmanna er félagslegur jöfnunarsjóður sem hefur það að markmiði að tryggja námsmönnum í lánshæfu námi jöfn tækifæri til náms, án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja. Hjá MSNM starfa um 30 starfsmenn. Gildi sjóðsins eru: fagmennska, samstarf og framsækni. Nánari upplýsingar má finna á www.menntasjodur.is.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við Visku stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Birna Jónsdóttir

Tölvupóstur: helga@intellecta.is

Sími: 511-1225

Þjónustuaðili

Mennta­sjóður námsmanna

Upplýsingar um starf

Starf

Fjármálastjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

25.05.2026