Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Starf í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026

Starf í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

Hefur þú áhuga á að starfa í lifandi og fjölbreyttu starfsumhverfi þar sem góð samskipti, útsjónarsemi og greiningarhæfni eru lykilþættir?
Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að bæta drífandi liðsfélögum við teymið í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Um fullt starf er að ræða og munu viðkomandi einstaklingar vinna dagvinnu meðan á þjálfun og reynslutíma stendur sem er allt að 24 mánaða tímabil. Að því loknu verða þau sem standast hæfnismat ráðin og gert ráð fyrir að vaktavinna geti hafist. Kostur er ef viðkomandi býr á Suðurnesjum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Loftrýmiseftirlit, eftirlit með umferð á hafi og stuðningur við loftrýmisgæslu

  • Samskipti við stjórnstöðvar Atlantshafsbandalagsins

  • Eftirlit með fjargæslukerfum

  • Gagnaöflun og upplýsingamiðlun

  • Skýrslugerð og greining gagna

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Nám sem nýtist í starfi

  • Áhugi og geta til að starfa í fjölbreyttu tækniumhverfi

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð greiningarhæfni og lausnarmiðuð hugsun

  • Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar

  • Sjálfstæði, nákvæmni og agi í vinnubrögðum

  • Geta til að stunda vaktavinnu og vinna undir álagi

  • Reglusemi, snyrtimennska og stundvísi

  • Mjög góð enskukunnátta í ræðu og riti

  • Almenn ökuréttindi

Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Frekari upplýsingar um starfið

Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi – Þjónusta – Fagmennska.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.

Umsóknarfrestur er til og með 29. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Hjá Landhelgisgæslunni er starfað eftir og rík áhersla lögð á jafnréttisáætlun. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Birna Jónsdóttir

Tölvupóstur: helga@intellecta.is

Sími: 511-1225

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Starf í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026