Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður verðbréfamarkaða
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026
Forstöðumaður verðbréfamarkaða
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga í starf forstöðumanns verðbréfamarkaða á sviði háttsemiseftirlits sem er annað tveggja eftirlitssviða bankans.
Deildin verðbréfamarkaðir sinnir meðal annars verkefnum sem snúa að eftirliti með innviðum s.s. kauphöllum og verðbréfamiðstöðvum, framkvæmd og uppgjöri verðbréfaviðskipta, upplýsingaskyldu útgefenda, gagnsæi á markaði, markaðssvikum og gagnaskilum. Að auki er lögð rík áhersla á notkun gagna og aðferðir við að nýta gervigreind við eftirlit.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á uppbyggingu deildar og faglegri þróun verkefna.
Dagleg verkstjórn og mótun sterkrar liðsheildar.
Þróun eftirlits með inviðum, gagnagæðum og kerfum eftirlitsskyldra aðila.
Eftirlit með innviðum og gagnagæðum á verðbréfamarkaði.
Eftirlit með viðskiptum og upplýsingagjöf á verðbréfamarkaði.
Hagnýting gervigreindar við eftirlit.
Þátttaka í innra starfi Seðlabankans, stefnumótun og áætlanagerð.
Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi með stjórnvöldum og eftirlitsstofnunum.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í hagfræði, viðskiptafræði, verkfræði eða sambærileg menntun.
Sterkir leiðtogahæfileikar.
Reynsla af daglegri verkstjórn og mannaforráðum.
Þekking og reynsla af störfum er tengjast verðbréfamarkaði., þ.m.t. framkvæmd viðskipta, verðbréfauppgjöri, gagnaskilum og innleiðingu kerfa.
Þekking á löggjöf á verðbréfamarkaði, s.s. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum.
Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur.
Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
Fagleg vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir
framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits
Tölvupóstur: linda.kolbrun.bjorgvinsdottir@sedlabanki.is
Íris Guðrún Ragnarsdóttir
framkvæmdastjóri mannauðs- og menningar
Tölvupóstur: iris.g.ragnarsdottir@sedlabanki.is
Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður verðbréfamarkaða
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.05.2026
Umsóknarfrestur
18.05.2026