Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Aðallögfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.06.2026
Umsóknarfrestur
18.06.2026
Aðallögfræðingur
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir að ráða framsýnan lögfræðing með ríka samskiptahæfni í leiðandi hlutverk í miðlægu lögfræðiteymi. Starfið felur í sér ráðgjöf og þjónustu við stjórnendur og starfsfólk FSRE vegna lögfræðilegra málefna auk þess að fylgja eftir innkaupastefnu stofnunarinnar. Miðlægt lögfræðiteymi FSRE heyrir beint undir forstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Lögfræðileg ráðgjöf og stoðþjónusta til forstjóra, framkvæmdastjórnar og starfsfólks.
Samningagerð vegna útboðsverkefna og húsnæðisöflunar.
Gerð umsagna og svör við fyrirspurnum.
Verkefni á sviði persónuverndarmála stofnunarinnar.
Þátttaka í framþróun útboðs- og samningsforma vegna útboðsverkefna og leiguverkefna.
Hæfniskröfur
Embættis- eða fullnaðarpróf í lögum.
Lögmannsréttindi er kostur.
Þekking og reynsla á sviði verktakaréttar og opinberra innkaupa.
Þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.
Áhugi á stafrænum lausnum er kostur.
Mjög góð samskiptahæfni, þjónustulund og jákvæðni.
Færni í að koma upplýsingum og texta frá sér á skýran og skilmerkilegan hátt.
Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli. Þekking á norðurlandamáli er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflun húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins sem samanstendur af 530 þúsund m² húsnæði í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Jafnframt er unnið að fjölbreyttum fasteignaverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði.
Hjá FSRE starfa um 70 einstaklingar með breiða þekkingu á sviði fasteignarekstrar, framkvæmda og eignastýringar. Um er að ræða spennandi vinnustað sem er á fleygiferð inn í framtíðina og boðið er upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Lögð er áhersla á að styðja starfsfólk FSRE í þekkingaröflun, m.a. í gegnum alþjóðlegt tengslanet.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um störfin. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Thelma Kristín Kvaran
Tölvupóstur: thelma@intellecta.is
Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Aðallögfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.06.2026
Umsóknarfrestur
18.06.2026