Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Hefur þú reynslu af verkefnastjórnun?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Hefur þú reynslu af verkefnastjórnun?

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða sérfræðing til að starfa í deild alþjóðasamskipta, miðlunar og stefnumótunar á sviði skrifstofu bankastjóra.

Skrifstofa bankastjóra hefur miðlæga yfirsýn yfir starfsemi bankans, styður við störf bankaráðs, nefnda bankans auk seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Deild alþjóðasamskipta, miðlunar og stefnumótunar ber ábyrgð á ráðgjöf og þjónustu við framangreinda aðila, sem meðal annars felst í undirbúningi funda, erinda, ákvarðana, verkefnastjórn, undirbúningi nefndarstarfs og bankaráðsfunda. Deildin fer einnig með umgjörð stjórnarhátta, rekstraráhættu og verkefnastýringu verkefnasafns, alþjóðasamskipti, innra upplýsingaflæði ásamt ytri upplýsingamiðlun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróa og styðja við yfirsýn yfir safn stærri verkefna þvert á svið bankans.

  • Fylgjast með stöðu verkefna í verkefnasafni bankans og stuðla að skilgreindum markmiðum og tímamörkum sé náð.

  • Miðla upplýsingum um stöðu verkefnasafns á skilvirkan hátt.

  • Hanna ferla og þróa skipulag verkefnastýringar og áætlana innan sviðs.

  • Verkefnastjórn verkefna innan sviðs og þvert á svið bankans.

  • Fjölbreytt sérfræðiverkefni sem koma til úrlausnar á sviðinu.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.

  • Alþjóðavottun eða menntun á sviði verkefnastjórnunar er kostur.

  • Þekking á verkefnastjórnunarkerfinu Jira eða sambærilegum hugbúnaði er kostur.

  • Reynsla og þekking á hag- og fjármálakerfinu er kostur.

  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.

  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.

  • Fagleg vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún S. Gunnarsdóttir

forstöðumaður alþjóðasamskipta, miðlunar og stefnumótunar

Tölvupóstur: gudrun.s.gunnarsdóttir@sedlabanki.is

Telma Ýr Unnsteinsdóttir

sérfræðingur á mannauðssviði

Tölvupóstur: mannaudur@sedlabanki.is

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Hefur þú reynslu af verkefnastjórnun?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026