Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins

Upplýsingar um starf

Starf

Sauðárkrókur – verslunarstjóri

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.05.2026

Umsóknarfrestur

28.05.2026

Sauðárkrókur – verslunarstjóri

Vínbúðin óskar eftir að ráða verslunarstjóra í Vínbúðina Sauðárkróki. Við leitum að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við frábæran starfsmannahóp ÁTVR. Viðkomandi þarf að vera ábyrgðarfullur og hafa vilja og getu til að takast á við margvísleg verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini

  • Dagleg stjórnun, birgðahald og umhirða búðar

  • Eftirfylgni þjónustu- og gæðastefnu fyrirtækisins

  • Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun

Hæfniskröfur

  • Reynsla af verslunar- og/eða verkstjórn

  • Frumkvæði, metnaður og ábyrgð í starfi

  • Gott viðmót og rík þjónustulund

  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum

  • Almenn tölvukunnátta

Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.

Sakavottorðs er krafist.

Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á vinbudin.is.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

ÁTVR rekur 49 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Thelma Kristín Snorradóttir

Tölvupóstur: starf@vinbudin.is

Þjónustuaðili

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins

Upplýsingar um starf

Starf

Sauðárkrókur – verslunarstjóri

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.05.2026

Umsóknarfrestur

28.05.2026