
Þjónustuaðili
Lyfjastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í lyfjaskráningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026
Sérfræðingur í lyfjaskráningum
Lyfjastofnun auglýsir laust starf sérfræðings í skráningum lyfja. Starfið heyrir undir deildina markaðsleyfi á sviði mats og skráningar lyfja. Leitað er að jákvæðum, drífandi og nákvæmum einstaklingi. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í 100% starfshlutfalli.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat og afgreiðsla umsókna um ný markaðsleyfi
Mat og afgreiðsla breytinga og viðhald á útgefnum markaðsleyfum
Mat og þýðingar á lyfjatextum
Afgreiðsla ýmissa skráningarverkefna
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Þekking eða reynsla á sviði lyfjaskráninga eða viðfangsefnum starfsins er kostur
Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Mjög góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Góð tölvufærni
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og færni
Frekari upplýsingar um starfið
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Lyfjastofnun heyrir undir heilbrigðisráðuneytið og sér um að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 70 starfsmenn. Lyfjastofnun starfar eftir mannauðsstefnu sem miðar að því að hafa helgað starfsfólk, rétt fólk á réttum stað og að vera eftirsóknarverður vinnustaður. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Thelma Kristín Kvaran
Tölvupóstur: thelma@intellecta.is
Lea Kristín Guðmundsdóttir
Tölvupóstur: leakristin@intellecta.is

Þjónustuaðili
Lyfjastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í lyfjaskráningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026