Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Kvikmynda­mið­stöð Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í umsýslu endurgreiðslna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Sérfræðingur í umsýslu endurgreiðslna

Kvikmyndamiðstöð Íslands óskar eftir að ráða drífandi einstakling með faglegan styrk, metnað, frumkvæði og góða samskiptahæfni til að sinna starfi sérfræðings í umsýslu endurgreiðslukerfis vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf á vettvangi íslenskrar kvikmynda- og sjónvarpsgerðar þar sem viðkomandi vinnur náið með ýmsum hagaðilum, þ.m.t. nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, framleiðendum, umsækjendum, endurskoðendum og stjórnvöldum.

Endurgreiðslukerfið byggir á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi og er ætlað að efla innlenda kvikmyndagerð og stuðla að alþjóðlegri framleiðslu hér á landi.

Starfið krefst nákvæmni, faglegra vinnubragða og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi umsækjenda og samstarfsaðila. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur áhuga á kvikmyndagerð og opinberri stjórnsýslu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsýsla umsókna um vilyrði og útborgun endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar

  • Yfirferð umsóknargagna

  • Samskipti og leiðbeiningar til umsækjenda og annarra hagaðila

  • Undirbúningur mála fyrir fundi nefndar um endurgreiðslur

  • Frágangur mála, umsýsla gagna og skjalavarsla

  • Þátttaka í þróun verklags, leiðbeininga og umbótaverkefna tengdum endurgreiðslukerfinu

  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Þekking eða reynsla af kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu

  • Reynsla af yfirferð fjárhagsgagna, bókhalds eða uppgjöra

  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur

  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur

  • Frumkvæði, nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð

  • Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi

Frekari upplýsingar um starfið

Kvikmyndamiðstöð Íslands gegnir lykilhlutverki í íslenskum kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði með því að veita fjármagn til framleiðslu íslenskra kvikmynda og sjónvarpsverka, kynna íslenskar kvikmyndir á alþjóðlegum vettvangi og styðja við kvikmyndamenningu á Íslandi með margskonar hætti. Kvikmyndamiðstöð Íslands leggur áherslu á lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi með möguleika á aðkomu að fjölbreyttum og spennandi verkefnum tengdum stuðningi við kvikmyndir. Nánari upplýsingar má finna á: www.kvikmyndamidstod.is.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Kvikmyndamiðstöð Íslands leggur áherslu á fjölbreytileika og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Svava Sandholt

Tölvupóstur: sigridur@intellecta.is

Helga Birna Jónsdóttir

Tölvupóstur: helga@intellecta.is

Sími: 511-1225

Þjónustuaðili

Kvikmynda­mið­stöð Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í umsýslu endurgreiðslna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026