Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður viðskiptaumsjónar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
03.06.2026
Forstöðumaður viðskiptaumsjónar
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga í starf forstöðumanns viðskiptaumsjónar á sviði markaðsviðskipta.
Svið markaðsviðskipta hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir, sér um stýringu á efnahagsreikningi bankans, vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða, umsjón með lánamálum ríkissjóðs, auk heildstæðs eftirlits með fjárhagsáhættu á efnahagsreikningi Seðlabankans.
Deild viðskiptaumsjónar er ein af fjórum deildum á sviðinu og sinnir fjölbreyttum bakvinnsluverkefnum m.a. frágangi viðskipta vegna lánamála ríkisins, gjaldeyrisviðskipta og markaðsaðgerða Seðlabankans. Einnig veitir deildin ríkisstofnunum almenna bankaþjónustu, hefur umsjón með verðbréfavörslu, kortauppgjöri og ber ábyrgð á Swift málefnum bankans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á verkefnum deildarinnar, innleiðingu og faglegri þróun þeirra.
Dagleg verkstjórn og mótun sterkrar liðsheildar.
Annast innlent og erlent verðbréfauppgjör og verðbréfavörslu.
Ábyrgð á greiðslumiðlun í íslenskum krónum og erlendum myntum.
Eftirlit með vöktun og rekstri kortauppgjörskerfis.
Umsjón með bankaþjónustu fyrir ríki og ríkisstofnanir.
Þátttaka í innra starfi Seðlabankans, stefnumótun og áætlanagerð.
Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði eða sambærilegum greinum.
Sterkir leiðtogahæfileikar.
Reynsla af daglegri verkstjórn og mannaforráðum æskileg.
Viðeigandi þekking og reynsla af fjármálamarkaði t.d. úr viðskiptaumsjón eða bakvinnslustörfum.
Góð reynsla og/eða þekking á innlendri og erlendri greiðslumiðlun, Swift-kerfum, verðbréfauppgjöri og vörslu verðbréfa.
Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
Fagleg vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Umsóknarfrestur er til og með 03.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Íris Guðrún Ragnarsdóttir
framkvæmdastjóri manauðs- og menningar
Tölvupóstur: iris.g.ragnarsdottir@sedlabanki.is
Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður viðskiptaumsjónar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
03.06.2026