Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjarskipta­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Leiðandi sérfræðingur í sóknaröryggi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.05.2026

Umsóknarfrestur

09.06.2026

Leiðandi sérfræðingur í sóknaröryggi

Fjarskiptastofa leitar að leiðandi sérfræðingi við framkvæmd eftirlits á netöryggi fjarskiptafyrirtækja og annarra mikilvægra innviða á grundvelli laga nr. 78/2019, um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, og laga nr. 70/2022, um fjarskipti.

Starfið felur í sér framkvæmd og þróun sóknaröryggis hjá netöryggissviði Fjarskiptastofu, þ.e. veikleikaskannana og tæknilegra prófana á net- og upplýsingakerfum aðila sem eru undir eftirliti Fjarskiptastofu. Í starfinu reynir á sjálfstæð vinnubrögð, getu til að vinna í teymi og framsýni. Heyrir starfið undir sviðsstjóra.

Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á netöryggi samfélagsins, sterka getu til að leiða mál áfram með samstarfi að leiðarljósi, býr yfir ríkum umbótavilja og samskiptahæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framkvæmd eftirlits á grundvelli laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og laga um fjarskipti, þ.e. netvarnir og prófanir netöryggis

  • Leiða framkvæmd veikleikaskannana hjá eftirlitsskyldum aðilum, þ.m.t. fagleg leiðsögn yngri sérfræðinga.

  • Gerð þarfagreininga og umsjón með samskiptum við ráðgjafa og samhæfingu við eftirlitsskyldra aðila.

  • Þátttaka í stjórnsýsluskoðunum og þátttaka í greiningu alvarlegra öryggisatvika eða netárása hjá aðilum undir eftirliti stofnunarinnar.

  • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði net- og upplýsingaöryggis eftir því sem við á.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði er skilyrði. Meistarapróf sem nýtist í starfi er kostur.

  • Reynsla af leiðandi hlutverki við framkvæmd eða umsjón tæknilegra öryggisprófana, þ.m.t. veikleikaskannana og innbrotsprófana, er skilyrði.

  • Þekking og reynsla af aðferðafræði sóknaröryggis, innbrotsprófana og tæknilegra öryggisúttekta á net- og upplýsingakerfum. Reynsla af leiðandi hlutverki.

  • Hæfni til að leiða samskipti og samhæfingu prófunaraðila og aðila við framkvæmd tæknilegra prófana.

  • Sterk greiningarhæfni og reynsla af úrvinnslu niðurstaðna, gerð skýrslna og framsetningu umbótatillagna á sviði netöryggis.

  • Hæfni til þess að starfa sjálfstætt, leiða verkefni, veita faglega leiðsögn og vinna með þverfaglegu teymi.

  • Búa yfir góðri samskiptafærni ásamt öguðum og skipulögðum vinnubrögðum.

  • Þarf að hafa gott vald á íslensku og ensku.

Viðkomandi ‏þarf að hafa hreint sakavottorð og forsenda ráðningar er að viðkomandi standist öryggisvottun á grundvelli varnamálalaga.

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 100% starf. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag.

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá (hámark 2 bls.) ásamt kynningarbréfi (hámark 1 bls.), á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni.

Umsókn er send á Unni Kristínu Sveinbjarnardóttur, sviðstjóra netöryggissviðs á netfangið unnur@fjarskiptastofa.is

Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er.

Við hvetjum þau sem eru áhugasöm til að sækja um starfið, óháð kyni og uppruna.

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019.

Fjarskiptastofa gegnir veigamiklu hlutverki á sviði netöryggis hér á landi og er ætlað að stuðla að öryggi almennings, fyrirtækja og samfélagsins alls á sviði fjarskipta- og netöryggis. Þá skal stofnunin horfa til almannahagsmuna og þjóðaröryggis við framkvæmd eftirlits síns á þessu sviði.

Netöryggissviðið tekur til víðtækra verkefna – allt frá áhættugreiningum, úttektum og prófunum á netvörnum mikilvægra innviða til stefnumótunar og samstarfs við innlend og erlend stjórnvöld. Með samræmdri nálgun, virku samstarfi og gagnadrifnu eftirliti vinnur stofnunin að því að efla viðnámsþol íslensks samfélags gagnvart sífellt flóknari netógnum.

Sviðið fer einnig með eftirlit með rafrænum auðkenningum, rafrænum undirritunum og öðrum traustþjónustum. Þegar fram líða stundir mun það einnig sinna eftirliti tengdu stafræna auðkennisveskinu (EU Identity Wallet).

Þá hýsir netöryggissviðið Eyvöru – hæfnissetur Íslands í netöryggi. Eyvör er öflugur vettvangur fyrir fræðslu, þjálfun og samstarf sem miðar að því að efla færni, sérfræðiþekkingu og getu á sviði netöryggis.

Sjá einnig á www.fjarskiptastofa.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir

sviðstjóri netöryggissviðs

Tölvupóstur: unnur@fjarskiptastofa.is

Þjónustuaðili

Fjarskipta­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Leiðandi sérfræðingur í sóknaröryggi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.05.2026

Umsóknarfrestur

09.06.2026