Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

FSRE

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðsstjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

02.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026

Mannauðsstjóri

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) leitar að öflugum einstaklingi í starf mannauðsstjóra. Hjá FSRE starfa um 70 sérfræðingar með breiða þekkingu á sviði fasteignaumsýslu, framkvæmda og eignastýringar. Um er að ræða spennandi vinnustað sem er á fleygiferð inn í framtíðina og býður upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Mannauðsstjóri FSRE situr í framkvæmdastjórn og tekur virkan þátt í stjórnun og stefnumótun stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur í mannauðstengdum málefnum

  • Stefnumótun í mannauðsmálum og starfsumhverfi FSRE

  • Mat á mannaflaþörf, umsjón með ráðningum, móttöku nýliða og starfslokum

  • Ábyrgð á launavinnslu og launasetningu

  • Umsjón með fræðslu- og starfsþróunarmálum

  • Yfirumsjón með ferla- og gæðamálum mannauðs

  • Ábyrgð á lykilverkefnum í mannauðsmálum

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Haldbær reynsla af stefnumótun og rekstri mannauðsmála

  • Reynsla af stjórnendaráðgjöf

  • Þekking og reynsla af kjaramálum hjá hinu opinbera er kostur

  • Reynsla af fræðslu- og starfsþróunarmálum er æskileg

  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum

  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og öguð vinnubrögð

  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflun húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins sem samanstendur af 530 þúsund m² húsnæði í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Jafnframt er unnið að fjölbreyttum fasteignaverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði.
Hjá FSRE starfa um 70 einstaklingar með breiða þekkingu á sviði fasteignarekstrar, framkvæmda og eignastýringar. Um er að ræða spennandi vinnustað sem er á fleygiferð inn í framtíðina og boðið er upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Lögð er áhersla á að styðja starfsfólk FSRE í þekkingaröflun, m.a. í gegnum alþjóðlegt tengslanet.

Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Um fullt starf er að ræða.
FSRE hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Thelma Kristín Kvaran

Tölvupóstur: thelma@intellecta.is

Þjónustuaðili

FSRE

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðsstjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

02.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026