Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Óperan auglýsir eftir repetitör/píanóleikara í fullt starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

16.07.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026

Óperan auglýsir eftir repetitör/píanóleikara í fullt starf

Óperan óskar eftir að ráða reyndan repetitör/píanóleikara í fullt og ótímabundið starf. Haldnar verða prufur í Reykjavík dagana 21.–24. september 2026.

Óperan starfar sem hluti af Þjóðleikhúsinu, hefur aðsetur í Hörpu í Reykjavík og setur bæði upp sígildar óperur og samtímaverk, auk þess að standa fyrir fræðslu-, þróunar- og nýsköpunarverkefnum. Í söngvarateymi eru sex söngvarar. Óperan vinnur með helstu hljómsveitum landsins og heldur sýningar víða um land.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • undirbúningur söngvara

  • undirleikur á sviðs- og tónlistaræfingum sem og í prufum

  • píanó/semballeikur með hljómsveitum og kammerhópum

  • undirleikur á tónleikum söngvara

  • aðstoð við tónlistarstjóra og gestastjórnendur eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • háskólagráða í píanóleik, söngþjálfun (coaching) eða hljómsveitarstjórn

  • framúrskarandi færni í píanóleik

  • a.m.k. 2ja ára starfsreynsla sem repetitör í faglegu starfsumhverfi

  • mjög góð enskukunnátta og hæfni til að leiða æfingar á ensku

  • góð kunnátta í helstu óperutungumálunum (ítölsku, frönsku og þýsku)

  • góð íslenskukunnátta eða vilji til að læra íslensku

Frekari upplýsingar um starfið

Óperan býður:

  • faglegt, spennandi og skapandi starfsumhverfi sem hluti af uppbyggingu nýrrar óperu

  • ótímabundna ráðningu að loknu sex mánaða reynslutímabili

  • laun samkvæmt gildandi kjarasamningum fjármála- og efnahagsráðherra við viðeigandi stéttarfélag

  • starfsmannahlunnindi Þjóðleikhússins þ.m.t. niðurgreiddur hádegismatur og samgöngustyrkur

  • stuðning við íslenskunám þar sem við á

Prufuupplýsingar

Prufur fara fram í Reykjavík dagana 21.–24. september 2026 og verður völdum umsækjendum boðið í prufu.

Umsækjendur eru beðnir um að undirbúa:

  • Mozart: Le nozze di Figaro, lokaþáttur 2. þáttar (Esci omai)

  • Bizet: Carmen, kvintett í 2. þætti (Nous avons en tête)

  • Richard Strauss (eitt af eftirfarandi):

    • Der Rosenkavalier: forleikur og aría Octavians (Wie du warst)

    • Salome: Judenquintett (Das kann nicht sein)

    • Elektra: Mägde-Szene (Wo bleibt Elektra?)

  • píanóverk að eigin vali

Þeir umsækjendur sem boðaðir verða í prufuspil fá sendar frekari upplýsingar um fleiri verk tveimur vikum fyrir prufuna.

Umsóknarfrestur er til 24. ágúst 2026. Starfið hefst 1. janúar 2027.

Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi á ensku eða íslensku skal senda á richard.schwennicke@leikhusid.is

Óperan áskilur sér rétt til að ráða engan umsækjanda í starfið ef hópur umsækjenda uppfyllir ekki ofangreind hæfniviðmið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Richard Schwennicke

tónlistarstjóri

Tölvupóstur: richard.schwennicke@leikhusid.is

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Óperan auglýsir eftir repetitör/píanóleikara í fullt starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

16.07.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026