
Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Höfuðborgarsvæðið - áfyllingar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
62,5%
Starf skráð
01.06.2026
Umsóknarfrestur
10.06.2026
Höfuðborgarsvæðið - áfyllingar
Vínbúðin leitar að jákvæðum, röskum og þjónustuliprum einstaklingum til að starfa í áfyllingarteymi í Vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Um er ræða starf fyrri hluta dags alla virka daga, frá kl. 08:00 til 12:30.
Helstu verkefni og ábyrgð
Framstilling og áfyllingar á vöru og vörumeðhöndlun
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Stundvísi og dugnaður
Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri
Sakavottorðs er krafist
Frekari upplýsingar um starfið
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á vinbudin.is. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
ÁTVR rekur 50 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
Starfshlutfall er 62,5%
Umsóknarfrestur er til og með 10.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Höfuðborgarsvæðið - áfyllingar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
62,5%
Starf skráð
01.06.2026
Umsóknarfrestur
10.06.2026