Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Hæstiréttur Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður á skrifstofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Starfsmaður á skrifstofu

Hæstiréttur Íslands leitar að þjónustulunduðum og ábyrgum einstaklingi til starfa á skrifstofu réttarins. Um er að ræða fjölbreytt starf í 80% starfshlutfalli sem felur í sér margvísleg og mikilvæg verkefni á sviði stoðþjónustu.

Leitað er að einstaklingi sem hefur jákvætt viðhorf, sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi, er tilbúinn að takast á við ólík verkefni og býr yfir góðri samskiptafærni.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill vinna í starfsumhverfi þar sem fagmennska, traust og samvinna eru í öndvegi. Starfið heyrir undir skrifstofustjóra réttarins og veitir innsýn í störf æðsta dómstigs landsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka og skráning málsgagna ásamt umsjón með pökkun og frágangi þeirra

  • Móttaka dómsmálagjalda og gerð reikninga

  • Móttaka og upplýsingagjöf til þeirra sem til réttarins leita

  • Aðstoð við móttöku gesta

  • Umsjón með tölvupósthólfi réttarins

  • Umsjón með dómsölum fyrir og eftir málflutning og dómsuppkvaðningu

  • Innkaup rekstrarvara og umsjón með kaffistofu, ljósritunaraðstöðu og öðrum sameiginlegum rýmum

  • Önnur tilfallandi verkefni sem starfsmanni eru falin af skrifstofustjóra


Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun

  • Reynsla af skrifstofustörfum

  • Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf

  • Nákvæmni, ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Lipurð í samskiptum og samstarfi

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og drifkraftur

  • Góð tölvu- og tæknifærni

  • Þekking og reynsla af vefumsjónar- og málaskrárkerfum

  • Mjög góð færni í íslensku og góð færni í ensku

  • Þekking og skilningur á ferli dómsmála er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Með umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hæfni til að gegna starfinu. Starfskjör fara eftir gildandi kjarasamningi.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026. Sótt er um starfið í gegnum alfred.is.

Umsóknir um starfið geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ólöf Finnsdóttir

skrifstofustjóri Hæstaréttar

Tölvupóstur: olof.finnsdottir@fjs.is

Þjónustuaðili

Hæstiréttur Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður á skrifstofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026