Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026
Framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs
SEÐLABANKI ÍSLANDS leitar að öflugum leiðtoga til að gegna starfi framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir seðlabankastjóra í skipuriti bankans.
Fjármálastöðugleikasvið er eitt af kjarnasviðum bankans. Sviðið annast greiningu á áhættu í fjármálakerfinu, hefur eftirlit með gjaldeyrisjöfnuði lánastofnana og tekur þátt í mótun þjóðhagsvarúðarreglna fyrir fjármálakerfið til að draga úr kerfisáhættu. Þá annast sviðið eftirlit samkvæmt lögum um gjaldeyrismál. Fjármálastöðugleikasvið mótar stefnu fyrir rekstrarumgjörð kerfislega mikilvægra fjármálainnviða, hefur umsjón með atvikamiðstöð fjármálakerfisins og netárásarprófunum fyrir stofnanir og fyrirtæki sem eru mikilvæg fyrir íslenskt fjármálakerfi. Sviðið hefur umsjón með útgáfu ritsins Fjármálastöðugleiki og undirbýr efni sem lagt er til grundvallar ákvarðanatöku hjá fjármálastöðugleikanefnd.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stýrir og leiðir starfsemi sviðs fjármálstöðugleika.
Mótar stefnu, framtíðarsýn og verklag sviðsins í samræmi við stefnu og markmið bankans.
Þátttaka í mótun fjármálstöðugleikastefnu.
Ber ábyrgð á ritstjórn og kynningu á riti Seðlabankans um fjármálastöðugleika.
Ber ábyrgð á undirbúningi greininga, kynninga og ákvarðana fyrir fjármálastöðugleikanefnd þ.m.t. mótun þjóðhagsvarúðarreglna til að draga úr kerfisáhættu.
Stuðlar að viðnámsþrótti og framþróun kerfislega mikilvægra fjármálainnviða.
Ber ábyrgð á upplýsingagjöf tengdri verkefnum sviðsins til bankastjóra, annarra starfseininga og nefnda bankans auk kynninga til ytri aðila.
Byggir upp sterka liðsheild stjórnenda og sérfræðinga á sviðinu.
Stuðlar að traustu samstarfi við yfirstjórn og önnur svið innan bankans.
Ber ábyrgð á samskiptum sviðsins við innlenda, erlenda og opinbera aðila.
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á sviði fjármálastöðugleika.
Hæfniskröfur
Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi, s.s. á sviði hagfræði, fjármála, verkfræði eða sambærilegt.
Góðir leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla.
Víðtæk þekking og reynsla af fjármálamörkuðum og fjármálakerfinu.
Þekking og reynsla af þjóðhagsvarúðartækjum, greiningum og rannsóknum á sviði fjármálastöðugleika.
Þekking og reynsla af fjármálainnviðum.
Góð greiningarhæfni og hæfni til að vinna með flókin viðfangsefni.
Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
Áræðni, heiðarleiki og metnaður til að ná árangri í starfi.
Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026