Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Mennta­sjóður námsmanna

Upplýsingar um starf

Starf

Bókari

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

25.05.2026

Bókari

Menntasjóður námsmanna (MSNM) óskar eftir að ráða drífandi og nákvæman einstakling í starf bókara. Bókari ber ábyrgð á bókhaldi sjóðsins í samstarfi við aðalbókara og þarf viðkomandi að geta starfað sjálfstætt, sýnt frumkvæði og búa yfir ríkri þjónustulund og lausnamiðuðu hugarfari.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Færsla bókhalds og gerð reikninga

  • Innheimta, uppgjör og afstemmingar

  • Skráning skuldabréfa í skuldabréfakerfi

  • Skýrslugerð, gagnaöflun og úrvinnsla gagna

  • Þátttaka í umbótavinnu og þróun ferla

  • Samskipti við starfsfólk, hagaðila og viðskiptavini


Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Góð þekking og reynsla af bókhaldi, uppgjöri og afstemmingum

  • Reynsla af þróun verkferla er mikill kostur

  • Góð Excel kunnátta. Þekking og reynsla af Business Central er kostur

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt hugarfar

  • Frumkvæði, skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð

  • Gott vald á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Menntasjóður námsmanna er félagslegur jöfnunarsjóður sem hefur það að markmiði að tryggja námsmönnum í lánshæfu námi jöfn tækifæri til náms, án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja. Hjá MSNM starfa um 30 starfsmenn. Gildi sjóðsins eru: fagmennska, samstarf og framsækni. Nánari upplýsingar má finna á www.menntasjodur.is.

Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við Visku stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Birna Jónsdóttir

Tölvupóstur: helga@intellecta.is

Sími: 511-1225

Þjónustuaðili

Mennta­sjóður námsmanna

Upplýsingar um starf

Starf

Bókari

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2026

Umsóknarfrestur

25.05.2026