Þjónustuaðili
Atvinnuvegaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Vilt þú leiða Stofnun atvinnuveganna?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026
Vilt þú leiða Stofnun atvinnuveganna?
Er þér umhugað um matvælaöryggi, sjálfbæra nýtingu auðlinda og aðbúnað og velferð dýra? Vilt þú leiða stofnun sem er mikilvægur hlekkur í verðmætasköpun þjóðarinnar?
Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna. Leitað er eftir öflugum og umbótasinnuðum stjórnanda sem hefur reynslu og hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp fólks í gegnum breytingar með það að leiðarljósi að veita almenningi og atvinnulífi framúrskarandi þjónustu um land allt með því að samræma eftirlit með matvælum og sjálfbærri nýtingu auðlinda.
Um Stofnun atvinnuveganna
Stofnun atvinnuveganna er sjálfstæð eftirlits- og stjórnsýslustofnun sem heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið.
Stofnun atvinnuveganna verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, auk þess sem verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda sveitarfélaga flytjast til stofnunarinnar.
Verkefnasvið Stofnunar atvinnuveganna er fjölbreytt og viðamikið. Stofnunin gegnir stjórnsýslu- og eftirlitshlutverki á grundvelli nýsamþykktra laga ásamt því að framfylgja alþjóðlegum skuldbindingum sem snúa að viðfangsefnum stofnunarinnar. Þá fer stofnunin meðal annars með verkefni á sviði sjávarútvegs, stjórnunar fiskveiða, lagareldis, lax- og silungsveiði, fiskræktar, matvæla, dýravelferðar og heilbrigðis dýra og plantna. Stofnun atvinnuveganna stuðlar að skilvirku opinberu eftirliti, veitir stjórnvöldum ráðgjöf og miðlar upplýsingum til hagsmunaaðila og almennings.
Markmiðið er að koma á fót öflugri stofnun sem veitir þjónustu í heimabyggð á sviði eftirlits með matvælum og sjálfbærri nýtingu auðlinda, þannig að bæði fagþekking og ákvarðanataka haldist í nærumhverfinu.
Hjá Stofnun atvinnuveganna munu starfa um 200 manns.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mikilvægt er að vel takist til við að koma Stofnun atvinnuveganna á laggirnar og ljóst að ábyrgð og helstu verkefni forstjóra verða allt í senn krefjandi, umfangsmikil og skemmtileg. Forstjóri Stofnunar atvinnuveganna undirbýr gildistöku nýrra laga sem taka gildi 1. janúar 2027. Í undirbúningnum felst m.a. að móta áherslur og starfsemi stofnunarinnar þannig að hún verði í stakk búin að taka til starfa í upphafi næsta árs.
Forstjóri ber stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð á rekstri og faglegri starfsemi stofnunarinnar eins og lög og stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Þá ber forstjóri ábyrgð á þeirri aðstoð og ráðgjöf sem stofnunin veitir ráðherra við undirbúning og innleiðingu laga og reglugerða. Auk þess ber forstjóri ábyrgð á öðrum verkefnum sem stofnuninni eru falin með lögum, reglugerðum eða ákvörðunum ráðherra.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Farsæl reynsla af stjórnun og stefnumótun
Þekking og reynsla af rekstri og fjármálastjórnun
Leiðtogahæfni og færni í að skapa liðsheild og leiða fólk til árangurs
Farsæl reynsla af breytingastjórnun og innleiðingu umbóta
Þekking á opinberri stjórnsýslu og lagaumhverfi opinberra stofnana æskileg
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar
Reynsla og hæfni til að koma fram opinberlega og miðla upplýsingum
Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Atvinnuvegaráðherra skipar forstjóra Stofnunar atvinnuveganna til fimm ára í senn. Fjármála- og efnahagsráðherra ákveður laun í samræmi við grunnmat starfs. Ráðuneytið hvetur alla hæfa einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfniskröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað viðkomandi telur sig geta lagt af mörkum í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna. Hæfnisnefnd skipuð af atvinnuvegaráðherra metur hæfni umsækjenda samkvæmt reglum nr. 1600/2023. Umsókn skal skila með tölvupósti á atrn@atrn.is.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst nk.
Stofnun atvinnuveganna tekur formlega til starfa þann 1. janúar 2027 en gert er ráð fyrir að skipa forstöðumann stofnunarinnar haustið 2026 svo unnt sé að undirbúa starfsemi nýrrar stofnunar. Aðalstarfsstöðvar Fiskistofu og Matvælastofnunar eru nú á Akureyri og Selfossi. Kveðið verður nánar á um skipulag og starfsemi nýrrar sameinaðrar stofnunar í reglugerð.
Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Atvinnuvegaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Vilt þú leiða Stofnun atvinnuveganna?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026